04-Oct-2007 9:27

Í mjög stuttu máli þá verður síðunni ekki lokað en engin loforð um eitt né neitt!
Sigursteinn var að læra að frussa í gær og nú getur hann ekki hætt. Skemmtilegast af öllu er þegar foreldrarnir missa það og fara að hlæja af uppátækinu. Það er sko gaman að vera svona fyndinn. Hann er orðinn þriggja mánaða eins og flestir ættu að vita og þá var auðvitað komið að fyrstu bólusetningunni. Hann stóð sig eins og hetja þegar Áslaug rak nálina í lærið á honum og grét ekki neitt. Hann hins vegar varð aumari og aumari þegar leið á daginn og fékk hita litla skinnið og grét aðeins utan í mömmu sinni. Sunnudaginn 30. sept fórum við uppí Lón að skoða haustlitina sem voru rosa flottir. Sigursteinn fór þá út í fyrsta skipti svona án þess að vera í vagni eða stól. Það var þó bara í stutta stund. Eftir það fórum við svo með afmælisköku á Hlíðarberg handa afa gamla en hann og amma voru að koma heim úr smá ferðalagi norður. Einnig fórum við til að aðstoða við kofabyggingar í Einholti þennan sama dag. Nú bíðum við bara spennt eftir næstu helgi og vonum að við finnum eitthvað sniðugt að gera. Hérna í lokin setjum við brot af texta sem okkur finnst svo merkilega góður. Vel þess virði að lesa hann yfir.

I could have been a giant said the bonzai tree,
but someone bound my roots and held me down.
I could have reached for heaven said the snowy owl,
but they clipped my wings and kept me on the ground.

I think i heard them tell me that they love me,
teyd´d care for me without them i would die,
but whats the use of roots if you can´t spread them,
and whats the use of wings if you can´t fly

I could have been a singer said the minor bird,
but they caged me and they told me what to say.
I could have run forever said the pony,
but they bridled me and made me go their way.

I think i heard them tell me that they love me,
they´d care for me forever so it seems,
but whats the use of voices without freedom,
and whats the use of living other´s dreams

Why do people cage the things they love the most,
is it simply that we fear to be alone,
if you give your love it´s freedom it may stay a while,
if it leaves you, it was never yours to own.

 


21-Sep-2007 Trausti og Hugrún

Sælt veri fólkið!
Þá er búið að skíra Sigurstein Ingvar. Það var gert í Brunnhólskirkju og séra Sigurður sá um athöfnina. Okkur fannst athöfnin alveg rosalega fín og notaleg. Sigursteinn varð eitthvað pínu pirraður yfir því að þurfa að liggja útaf eins og eitthvað smábarn og var því reistur við og fékk bara að sitja hjá pabba sínum. Veislan var svo hérna heima hjá okkur og var bara nokkuð vel heppnuð höldum við. Það hefur enginn kvartað ennþá alla veganna. Sigursteinn fékk alveg helling af fallegum og góðum gjöfum sem við viljum enn og aftur þakka kærlega fyrir. Sunnudaginn 16. sept fór Sigursteinn svo í fyrsta skipti í fjárhúsin hjá ömmu sinni en það var verið að rétta á Hlíðarbergi. Hann stoppaði samt ekki lengi, bara rétt kíkti á lömbin og lagði mat á hrútana ;) Það er ekki mikið að frétta hjá okkur, Trausti er farinn að vinna aftur og Hugrún er að reyna að læra í þessu fagi sínu svona þegar Sigursteinn tekur dúrana sína. Í gær sat hann svo hjá henni og las með henni grein um samband barna og foreldra og hvernig það getur haft áhrif á afbrotahegðun barnanna. Merkileg lesning! Við gerum ekki mikið fyrir utan það að vinna og læra. Vinnudagurinn er búinn klukkan 18:00 og þá finnur maður sér eitthvað að éta, svæfir Sigurstein og ansi oft sjálfan sig í leiðinni. Við ætluðum að gera heiðarlega tilraun til að hafa það kósí í gærkvöldi þegar Sigursteinn var sofnaður og lögðumst uppí sófa en vöknuðum aftur klukkan hálf tólf á miðnætti með stráknum okkar og mundum þá ekki lengur hvað það var sem við vorum að tala um þegar við hölluðum okkur aftur í sófanum, svona erum við rosalega öflug. Sigursteinn vaknaði svo aftur klukkan tvö og svo fjögur...og fimm og þá fórum við fram. Jamm þetta var erfið nótt. Hann bætti samt svo fyrir allt saman í morgun þegar hann var að hlæja framan í pabba sinn. það er svo sætt, það eru svo miklir tilburðir við það að kreista þetta fram að hann hristist allur. Hann sá það að pabbi hans var eitthvað myglaður í morgun og þá þýðir ekki annað en að reyna að hressa karlinn við.
Við höfum verið ansi löt við að skrifa hérna á síðuna enda kannski ekki mikið til að skrifa um. Hver nennir að lesa um það hvernig maður sefur, hvernig gengur að setja gluggana í Túliníus, hvernig manni miðar með þakkantinn eða hvað er verið að læra! Það hefur því komið til tals að hætta með síðuna en það á eftir að leggja það fyrir nefnd heimilisins sem við hjónin og drengirnir tveir skipa.
Það eru ekki komnar inn myndir og við vitum ekki hvenær það kemur, ef það kemur. Veltur allt á ákvörðun nefndarinnar.


09-Sep-2007 10:08

Gugga klukkaði mig svo nú verð ég að hugsa aðeins:)

1) Ég er ekki hálfnuð með dúkinn undir jólatréið, keypti hann 2003.
2) Þegar ég er að veiða finnst mér skemmtilegast að kasta í vatnið, ekki svo gaman þegar það bítur á.
3)Ég er fædd á Akranesi en er Hornfirðingur, alveg eins og Gugga.
4)Hef ekki keypt mér kotasælu eftir að ljósan á Selfossi sagði að barnakúkur ætti að vera karrýgulur með kotasælukekkjum ( en það er nú reyndar tilvilju, borða alveg kotasælu þrátt fyrir þessi orð hennar).
5) Dóra verður að prjóna á mig húu fyrir veturinn þar sem ég kann hvorki að prjóna né hekla.
6) Mér er rosalega oft kalt.
7)Ég hef búið á Kjalarnesi...já ég veit hvað var ég að hugsa ;)
8) Mágkonur mínar byrja allar á S. Snæbjörg, Stefanía, Sigrún Inga, Svava og Sigga.

 


06-Sep-2007 8:24

Vegna mikilla þreytu og anna hjá foreldrunum þá eru lesendur síðunnar beðnir um að sýna smá þolinmæði vegna bilunnar í myndasíðu. Unnið verður að viðgerð þegar foreldranir hafa náð upp smá orku.
Við látum ykkur vita um leið og eitthvað gerist í þeim málum.

Kveðja Trausti og Hugrún Harpa


04-Sep-2007 15:33

Sigursteinn Ingvar varð tveggja mánaða í gær og fer í níu vikna skoðun á fimmtudaginn. Þá verður gaman að sjá hvað hann hefur þyngst mikið. Hann var mældur í sex vikna skoðun og þá mældist hann 55,5 cm en við viljum nú meina að hann hafi verið búinn að stækka um meira en 2,5 cm. Okkur finnst hann hafa stækkað svo rosalega mikið. Það var einhver ungur hjúkrunarfræðingur sem mældi hann þar sem Áslaug var í sumarfríi og vitanlega viljum við meina að hún hafi bara ekki kunnað nægilega vel til verka. Við erum að reyna að kenna Sigursteini að á nóttunni eigi hann að sofna sjálfur þegar hann er búinn að drekka og það gengur svona upp og ofan. Hann vaknaði alltaf svo vel á nóttunni og þá vorum við að standa í því að svæfa hann og það gat tekið þó nokkurn tíma stundum. Núna fær hann bara að drekka og svo beint aftur í rúmið. Honum þykir þetta nú heldur slöpp þjónusta sem hann fær og er ekki allskosta ánægður með þetta alltaf. Hann róast þó mikið þegar hann treður í bókstaflegri merkingu nefinu í bolinn hennar mömmu sinnar sem hann fær að hafa hjá sér í rúminu og gerir líka gæfumuninn ef mamma nennir að hanga á rúmgrindinni hjá honum og láta lófann hvíla á kinninni hans. Á tíma virkaði vel að setja spiladósina hans í gang en núna vill hann bara ræða málin við bangsimon og félaga.

 


27-Aug-2007 9:39 Hugrún Harpa

Jæja best að skrifa aðra færslu þar sem hin var svo ferlega leiðinleg að ekki nokkur maður hefur getað hugsað sér að kommenta eða skrifa í gestabókina dögum saman. Það er samt ekkert að frétta. Það er alveg brakandi blíða úti og er ekki loku fyrir það skotið að maður fari bara að veiða í dag. Það er að vísu eitthvað lítið um fisk en það er þá hægt að hafa gaman af því að henda í vatnið og draga slím og drullu í land. Greina drulluna og fá slím á puttana. Hver þarf fisk? Spúnninn festist æði oft í botninum þar sem ekki hefur rignt eins lítið hér í firðinum fagra í fimmtíu ár og lítið vatn er því í ánum. Kannski þess vegna sem lítið er um fisk, þeir synda víst ekki á þurru landi. Einhvern daginn ætla ég svo að arka með hann Trausta minn á berjastaðinn hans pabba gamla en ég má ekki opinbera hér hvar hann er þar sem pabbi treysti mér fyrir þessu hernaðarleyndarmáli síðasta haust. Þar fórum við í fyrra og komum heim með alltof mikið af berjum en við gátum ekki hugsað okkur að nýta ekki þessa miklu auðlind. Ég er samt búin að lofa Trausta því að hann þurfi ekki að tína berin þar sem hann veit víst ekkert leiðinlegra. Ég þarf heldur ekki að sækja mér ber í sultuna þetta haustið þar sem Snæsa var með alltof mikið magn í búrinu hjá sér og gaf okkur því góðan slatta af berjum. Það er farin að læðast sú tilfinning að mér þessa dagana að núna sé víst að koma sá tími sem ég á að fara að kaupa skólabækurnar en vegna veðurs hefur sú hugsun verið lögð til hliðar. Það er helst í fréttum af honum Sigursteini Ingvari að hann er bara sprækur og hefur gaman af því að láta foreldra sína hafa pínu fyrir sér. Hann er strax farinn að stjórna á heimilinu og hefur mjög sterka skoðun á því hvernig hlutirnir eiga að vera. Það er nátturlega mjög auðvelt þegar maður er svona sætur. Hann situr núna í ömmustólnum fyrir framan mig og er að skoða dótið sem Guðmundur Reynir lánaði honum. En nú nenni ég ekki að skrifa meira, það er kominn tími til að gera eitthvað sem vit er í.

 


22-Aug-2007 17:55 Hugrún Harpa

Sigursteinn Ingvar er allur að hressast. Það koma samt auðvitað inn á milli erfiðir dagar en æ oftar fær maður að sjá hann brosa og hjala. Hann fór með okkur í sitt fyrsta ferðalag í gær og það var auðvitað okkar stíll hafður á og farið fram og til baka sama daginn. Þannig var að ég þurfti að fara til læknis á Neskaupsstað og því lagði fjölskyldan ( - Sesar, sem var hjá ömmu og afa ) af stað snemma morguns og kom heim að kvöldi. Sigursteinn var algjört ljós og svaf alveg rosalega vel í bílnum. Fékk sér svo að súpa á Reyðarfirði og var svo sofnaður aftur þegar við komum á Neskaupsstað. Heimferðin var aðeins erfiðari og þegar við komum að Reyðará þá átti hann ekki meira eftir og grét með hléum restina af leiðinni. Þegar við komum heim settum við hann svo í bað og ég nuddaði hann aðeins, gaf honum að drekka og svæfði hann svo og sló hann met og svaf í 6 klst. Við vorum öll alveg búin eftir þetta ferðalag og við erum á því að það verður ekki farið út fyrir sýslumörkin í bráð :) Sigursteinn er orðinn alveg svakalega duglegur að vera í rúminu sínu og sofnar stundum alveg sjálfur þar.
Þessi hluti af fæðingarorlofinu hans Trausta er að verða búinn og verður frekar skrítið að hafa hann ekki hérna heima hjá okkur. Hann tekur svo síðasta mánuðinn í desember og okkur er strax farið að hlakka til að geta verið saman í rólegheitum að undirbúa jólin. Skólinn fer svo að byrja og hefur áhuginn aldrei verið eins lítill en það er bara að reyna og sjá hvernig fer. Sigrún amma kom með Halla og strákunum á Hlíðarberg svo Sigursteinn er búinn að hitta langömmu sína. Við vorum svaka kát að sjá þau öll sérstaklega þar sem við treystum okkur ekki til þess að fara með hann í Borgarnes þegar við vorum í bænum hjá lækninum.
Við höfum mikið verið spurð hvenær við ætlum að skíra og við getum sagt að við erum í viðræðum við prestinn og er svona spurning hvort það náist ekki í september. Best að segja sem minnst um það hvaða dagur það verður en við látum fólk vita þegar dagur verður ákveðinn. Það hafa verið miklar pælingar með hina ýmsu þætti sem snúa að skírninni og ákvarðanatakan eitthvað verið að þvælast fyrir okkur sem er svo sem ekkert nýtt fyrir okkur og því hefur þetta dregist svona hjá okkur. Hvaða prestur, heima eða í kirkju, hvaða dagur og svona eitt og annað. En eitt er komið á hreint og það er að Sigrún Inga og Steini verða skírnarvottar. Við vorum ákaflega ánægð þegar þau samþykktu að gera þetta fyrir okkur, treystum þeim fullkomlega fyrir þessu mikilvæga hlutverki. Skemmtilegt hvað þau hafa fylgt okkur í gegnum okkar stærstu stundir. Steini sagði við okkur þegar hann lokaði dyrunum á brúðarsvítunni að svo væri bara skírn eftir rétt rúmlega níu mánuði, það var aðeins lengra sem leið frá þeim degi en hann var sá fyrsti sem fékk að vita að það væri lítið kríli á leiðinni.

 


13-Aug-2007 18:25 Trausti

Hérna kemur smá tilkynning til lesenda þessara heimasíðu!!!!!!!!
Myndasafnið er komið í lag og Sigursteinn Ingvar er allur að hressast og dafnar vel. Um nætur þegar ég er að reyna að svæfa hann þá kemst ekkert annað að en að hjala og brosa mikið fyrir pabba sinn. Allt annað en að fara að sofa aftur. Það er alveg frábært.

   


04-Aug-2007 18:00 Hugrún Harpa

Já við vitum....við erum ekki sérlega dugleg við það að skrifa fréttir hér þessa dagana. Það hefur í raun ekki unnist tími til að gera neitt annað en að sinna Sigursteini Ingvari og þess á milli leggur maður sig til að reyna að safna smá orku. Við fórum með soninn til barnalæknis í Reykjavík í síðustu viku. Sigursteinn Ingvar er með bakflæði og bara nokkuð slæmur af því litli snáðinn. Hann er því kominn á lyf sem eiga að hjálpa honum og okkur finnst þau gera það. Hann er samt enn með einkenni og getur verið pínu óvær en ekkert í líkingu við það sem var búið að vera. Dagarnir geta því stundum verið ansi erfiðir og foreldrarnir föl í framan með bauga niður á kinn! En vonandi fer ástandið nú að batna dag frá degi og gullinu okkar að líða betur. Þar sem ástandið hefur verið sem hér segir þá er eiginlega ekki neitt annað að frétta. Hér á Höfn er mikið af fólki og reglulega gaman að sjá stemminguna í bænum. Við að vísu getum lítið tekið þátt í fjörinu en það litla sem við höfum farið út á svæði þá hefur verið reglulega gaman. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Verið þolinmóð með okkur, þetta fer að batna :)

 


17-Jul-2007 20:11 Hugrún Harpa

Ester kom í dag að vigta og skoða Sigurstein Ingvar. Hann er orðinn 3700 gr sem þýðir að hann er búinn að ná fæðingarþyngdinni aftur. Drengurinn hefur verið pínu argur síðustu daga og nætur og sagði Ester að það væri vegna þess að hann er ekki að ná að drekka rjómann, það er hann nær ekki að tæma tankana og er því bara alltaf að drekka ofan af og rjóminn verður alltaf eftir. En hann er nú samt sem áður að þyngjast fínt og býr ekki við skort. Hann á eftir að læra að meta rjómann ef hann er eitthvað eins og pabbi sinn :) Eins og sést á færslum síðunnar þá snýst allt um þennan litla dreng og er meira en nóg að gera á litla heimilinu. Tíminn flýgur frá manni og hefur svona skotist upp í kollinn á mér hvað ég var að hugsa að skrá mig í skóla þennan veturinn! Ég hef þó meiri áhyggjur af vorönninni þegar Sigursteinn Ingvar verður farinn að láta meira til sín taka. Sé alveg fyrir mér daginn sem hann sleppur í glósurnar og "les" þær staf fyrir staf. En þetta verður bara gaman. Sesar tekur þessu öllu nokkuð vel, er mjög upptekinn af " bróðir " sínum og hefur auga með öllu sem gerist. Honum bauðst að smakka mjólkina hans Sigursteins Ingvars um daginn en fannst nú litið varið í hana og gerði ekki meira en rétt svo hnusa af henni.
Áslaug er farin í sumarfrí og þá vorum við, eða mest ég eins og vængbrotinn fugl. Ég veit ekki hvað ég var búin að hringja oft í hana á þessari viku sem við vorum heima áður en fríið hennar byrjaði og hún var búin að koma til okkar fjórum sinnum. Er nokkuð viss um að hún hefur aldrei farið í eins margar vitjanir á sama heimilið á eins stuttum tíma. En okkur til mikillar gleði þá kom Ester í dag og sagði okkur að við mættum alltaf hringja ef það væri eitthvað og ef það væri eitthvað svona utan vinnutíma þá ætti hún heima hérna á Hólabrautinni svo það væri ekki langt fyrir hana að skokka til okkar. Þetta er svo heimilislegt og mikið öryggi að geta alltaf kallað í hana og Áslaugu ef það er eitthvað sem nýju foreldrarnir ekki kunna. Sem er nú ansi margt. Við ætlum þó að reyna að láta hana ekki sjá eftir því að hafa sagt þetta :) Við förum ekki mikið út en þegar við förum rignir yfir okkur hamingjuóskunum. Bæjarbúar hafa örugglega verið farnir að halda að þetta væri meðgangan endalausa þar sem það var fyrir löngu síðan farið að tala um hana Hugrúnu sem var alveg komin á steypirinn :) Verð svo að segja ykkur frá því í lokin að þegar við komum heim frá RVK með soninn mættu okkur ótal brosandi andlit á flugvellinum sem var mjög svo notalegt og vinalegt en það toppaði allt þegar við vorum komin heim og vorum að koma okkur fyrir og barið var að dyrum og þegar ég opnaði stóðu þar tvö ung börn sem réttu mér álbakka fullan af heitum snúðum með glassúr og óskuðu mér til hamingju með drenginn. Ég stóð alveg gáttuð með bakkann og þekkti ekki krakkana en þau fræddu mig um það hvaðan þau kæmu og var það Bryndís sem býr hér í næstu götu sem sendi okkur þessa æðislegu snúða. Það var ekki hægt að færa okkur neitt betra þar sem við vorum farin að þrá að fá eitthvað annað en brauð með gúrku og tómmat. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili og væri líklega rétt að fara að leggja sig þar sem nóttin gæti orðið erfið. Enn og aftur takk fyrir allar kveðjurnar.


14-Jul-2007 15:22 Trausti

Sælt veri fólkið.
Við erum búin að bæta við nokkrum myndum af Sigursteini Ingvari undir fyrstu dagarnir heima. Það verður svo uppfært reglulega.
Annars er bara allt gott af okkur að frétta, Sigursteinn Ingvar er bara hinn sprækasti, drekkur mjög vel og sefur vel. Hann ældi einn daginn, svolítið mikið og Hugrún hringdi í Áslaugu sem sagði að hann hefði bara borðað yfir sig. Jamm, hann er ekki orðinn 2 vikna gamall og strax orðinn eins og pabbi sinn, finnst gott og gaman að borða.
Sigrún Inga, Steini, Guðbjörg og Magnús Ingi komu í dag að kíkja á Sigurstein Ingvar. Það er ekki hægt að segja um strákinn að hann sé mannafæla, hann var hinn rólegasti þegar fólkið fór að halda á honum og líkaði það bara vel.
Á þriðjudaginn næsta kemur hjúkrunarfræðingur og ætlar að vigta kappann og þá sjáum við hvað hann hefur þyngst mikið. Okkur finnst hann hafa stækkað rosalega mikið og þyngst helling. Hann er meira að segja farinn að vaxa upp úr fötunum sínum. Að lokum viljum við bara þakka fyrir allar þær hamingjuóskir sem við höfum fengið frá vinum og vandamönnum og bendum á tengilinn hér til hægri ef ykkur vantar lykilorði á myndasíðuna.
Bless í bili.



10-Jul-2007 21:52 Trausti

Vildi bara láta ykkur vita að gestabókin er komin í lag og það eru komnar fleiri myndir af Sigursteini Ingvari á netið.
Áslaug kom í dag og vigtaði Sigurstein Ingvar og hafði hann þyngst um 80gr. frá því að við fórum heim á föstudaginn, hún er voðalega ánægð með hann, segir hann vera alveg til fyrirmyndar. Við erum alveg að rifna úr monti af stráknum okkar. :)
Helga Krisey, dóttir Jóhönnu og Ásgeirs á Smyrlabjörgum, gaf Sigursteini Ingvari hamar, alvöru sko, með gúmmíhaus, meira svona eiginlega gúmmísleggju. Kemur sér vel seinna meir, örugglega.


09-Jul-2007 11:40 Hugrún Harpa

Jæja þá er Áslaug ljósmóðir hér eftir Áslaug, búin að koma að skoða Sigurstein Ingvar. Hún kom að vísu til okkar líka á laugardaginn svona til að sjá hvernig við hefðum það. En í dag kom hún til að taka blóðprufu. Sigursteinn Ingvar var sofandi þegar hún kom en rumskaði svo og var sko alls ekki sáttur þegar hann var tekinn og stunginn í hælinn! Þvílíkt rúmrasks það að stinga mann bara! En hann jafnaði sig fljótt. Áslaug var svakalega ánægð með hann og sagði hann vera til fyrirmyndar. Þurfti svo sem ekki að segja þessum rígmontnu foreldrum það.
Ég ætla nú ekki að koma með einhverja nákvæma fæðingarsögu hér enda finnst mér bara ekki hægt að lýsa því með orðum hvernig það var að eignast hann Sigurstein Ingvar. Að fá hann í fangið er eitthvað sem er bara engu líkt. Trausti var algjör hetja í fæðingunni og ég er viss um að hann er einn virkasti faðir sem til er :) Ljósmóðirin okkar hún Herborg er alveg æðisleg og vildi allt fyrir okkur gera. Hún meira að segja fór ekki heim þótt vaktin væri búin því ég vildi ekki missa hana :) Við fréttum það svo seinna á sængurlegunni að hún hefði ætlað að vera með matarboð en endað með að fara með gestina sína á Rauða húsið þar sem hún var föst yfir okkur :) Það var frábært að eiga á Selfossi og eru allar ljósmæðurnar þar alveg frábærar. Við mælum hiklaust með því að eiga þar.
Fyrir þá sem eru að velt því fyrir sér hvaðan nöfnin eru fengin þá kemur Sigursteins nafnið frá afa Hugrúnar og Ingvar frá langafa Trausta. Nú fer að styttast í að gullmolinn okkar vakni og þá er eind gott að vera tilbúin með forðabúrið, það er svo reglulegur svefn tími á honum að það væri hægt að stilla klukku eftir því.
Takk fyrir allar hamingjuóskirnar.
Látum heyra frá okkur síðar.


08-Jul-2007 19:50 Trausti

Halló Halló
Vildi bara láta ykkur vita að það er komin ný gestabók, svona til bráðabirgða. Endilega verið dugleg að skrifa í hana, það er svo gaman að lesa skemmtilega gestabók.


07-Jul-2007 16:23 Trausti

Þá er erfinginn loksins kominn í heiminn.
Við hjónin eignuðumst 14 marka dreng þann 3.júlí síðastliðinn á Sjúkrahúsinu á Selfossi. Við komum svo heim í gær og var það nú ansi notalegt. Við erum búinn að nefna drenginn og fékk hann nafnið Sigursteinn Ingvar. Svo erum við búin að setja inn myndir og video af honum. Sesar er búinn að hitta strákinn og veðraðist allur upp, vildi bara þefa af honum og var MJÖG áhugasamur um þennan nýja fjölskyldumeðlim.
Meira verður það ekki núna, þarf að fara að sinna nýja hlutverkinu.


19-Jun-2007 11:21 Hugrún Harpa

Það var hasar á heimilinu í gær. Framkvæmdin "drepum geitunginn" átti sér stað í stofunni.... Ég hafði opnað gluggana í stofunni þar sem mér var orðið heitt. Þegar mér er orðið heitt þá er ekki líft fyrir aðra í húsinu. Svo það var ekkert annað að gera en að reyna að lofta aðeins út. Seinna um daginn sat ég fyrir framan sjónvarpið og var að horfa á skjávarpið, var í rólegheitunum að afla mér upplýsinga um það hvað er að gerast í sveitarfélaginu, hvar maður getur gert góð kaup og annað slíkt. Mér verður þá litið inní stofu og sé þar mér til mikillar skelfingar að það er geitungur á rúðunni en geri mér þó ekki fulla grein fyrir því hvort hann er inni eða úti. Til allrar hamingju var Trausti hetja kominn heim og var hann auðvitað sendur til að kanna stöðu mála. Þegar í ljós kom að kvikindið var inni í húsi okkar réðst Trausti gegn óvini okkar með glerúðabrúsann að vopni. Óvinurinn átti enga von þar sem hann svamlaði í glerúðanum á gluggakistunni og endaði svo í klósettpappír og var svo rennt útí sjó. Þið kannski veltið fyrir ykkur hvar við lærðum þessar merkilegu aðferðir....ég get sko sagt ykkur það að þetta er eitt af mörgu sem ég lærði við störf mín í Krónunni á Selfossi :) Hef aldrei skilið hvað allir eru að tala um hnakkana á Selfossi, hafið þið séð GEITUNGANA þar ?! En hugsa sér hvað ég á Krónunni þar margt að þakka. Til dæmis það að ég ákvað að bíða ekki lengur með að fara í skóla. Svo ekki sé talað um fólkið sem ég kynntist þar, gott fólk sem á engann sinn líka :) En Krónan er búin að vera, jamm þegar krúið mitt hætti þá bara fór allt á versta veg og Krónan er bara búin, eins og glerúðinn minn. Nú verð ég að kveikja á skjávarpinu og sjá hvort ekki sé gott tilboð á glerúða hjá honum Pálma í Nettó. Já gott fólk þetta gerðist á Hólabrautinni í gær.

 


17-Jun-2007 11:23 Hugrún Harpa

Já heill mánuður síðan síðast en samt veit ég ekkert hvað ég á að skrifa. Það er ekki mikið búið að gerast. Trausti var allar helgar í mai í Svínafelli en svo er hann búinn að vera heima núna í júní. Tíminn hefur þá aðallega farið í það að ditta að heimilinu og garðinum. Bumban er stór og þung stundum en samt er ég alveg hin hressasta og krílið líka. Spriklar mikið og treður tánum á milli rifbeina og svona fínt. Það er nánast allt klappað og klárt fyrir komu erfingjans eða svona það sem á að gera áður en barnið kemur í heiminn svo í raun er hálfgerður verkefnaskortur þessa dagana. En það er kannski bara allt í lagi að slaka aðeins á svona á lokasprettinum. En maður finnur sér líka alltaf eitthvað að gera, í gær vorum við að mála kirkjuna á Mýrum og í dag á bara að hafa það náðugt og halda uppá 17. júní. Sem sagt fá sér ís, eða þannig heldur Trausti uppá daginn :) Jú svo er það að frétta að ég náði öllum prófunum. En nú nenni ég ekki að hugsa upp meira til að skrifa um. Held það sé bara ekki neitt meira. Kannski verður ekki alveg mánuður þangað til næst, annars gæti það alveg verið þar sem við erum svo upptekin við að njóta sumarsins og brasa í hinu og þessu.


16-May-2007 9:11 Hugrún Harpa

Þá er síðasta prófið búið og hef ég sterkan grun um að tilraun mín til þess að vera réttum megin við fimmuna hafi bara engan veginn tekist. En það mátti reyna þetta. Hver veit kannski elskar kennarinn mig alveg rosalega mikið. Eftir prófið í gær var ég svo eins og fangi að sleppa út eftir LANGA vist. Já ég var sloppin út úr minni eigin afneitun. Tréin voru ekki svo græn þegar ég fór í prófið en þegar ég kom út úr Nýheimunum...o boj o boj :) það var allt svo grænt og fallegt. Ég er ekki að ýkja núna, mér leið eins og ég væri bara að detta inní þennan heim aftur og allt var eitthvað svo framandi og fallegt. Allt í einu var ég aftur farin að sjá myndefni í hverju horni og á leiðinni uppá Hlíðarberg snéri ég öfugt hálfa leiðina því við vorum að keyra framhjá einhverju svo fallegu og merkilegu. Allir þessir fuglar, hvenær komu þeir? Enda sagði Trausti karlinn við mig á leiðinni. Velkomin aftur Hugrún mín, gaman að fá þig aftur í þennan heim :) Morguninn er svo búinn að vera eins og allir morgnar hjá mér eftir síðasta próf, já ég ætti kannski að greiða hárið í dag :) Já og ég ætlaði að gera þetta og þetta og þetta.....
Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Ég tútna út og er komin á það stig að vera stundum pínu heitt. Sem er frekar óvenjulegt fyrir mig eins og þið flest vitið. Trausti er alltaf að vinna og ég er jahhh...nú veit ég ekki hvað ég verð alltaf að gera. Þvo barnaföt, lesa bækur sem eru áhugaverðari en skólabækurnar, vera húsmóðir, taka myndir, vinna í garðinum, sauma út fæðingarmyndina, hekla og prjóna HAHA....sénsinn að ég sé að hekla og prjóna, kann það ekki. Handavinnukennarinn sem lagði svo mikla áherslu á r-ið getur vottað það. Held hún hafi gránað á svip stundu þegar ég kom í skólann. En nú ætla ég að fara út í sólina og taka myndir. Bæ í bili.

 


29-Apr-2007 14:43 Hugrún Harpa

Hvers vegna er svona erfitt að læra á sunnudögum? Já og ekki bara á sunnudögum...eiginlega bara alla daga. Það er bara flest allt meira spennandi en skólabækurnar akkurat núna. Kannski að ég segi ykkur bara garðyrkjusögu.
Við hjónin eyddum föstudeginum og laugardeginum í garðinum okkar. Á föstudagskvöldið tókum við okkur stunguspaða í hönd og réðumst gegn alaskavíðirnum og þegar við höfðum lokið við að stinga hann upp fékk yllirinn að fara sömu leið, það tók ekki alveg eins fljótt af! Hann hefur farið einstaklega í taugarnar á Trausta síðan við komum enda var hann ekki mjög líflegt garðdjásn. Þó fann ég mikið til með honum þegar við byrjuðum að brjóta hann niður þar sem hann var á lóðinni okkar varnarlaus, hann valdi það örugglega ekki sjálfur að vera settur þarna, og engu gat hann ráðið um að þetta illgjarna fólk skildi kaupa lóðina og þar með hann. En ég hætti að vorkenna honum þegar við vorum búin að bagsa við það að ná honum í ríflega klukkustund. Þá gáfum við eftir og fórum í háttinn með það í huga að ráðast gegn honum úthvíld daginn eftir og vera þá búin að verða okkur út um öflugri verkfæri, Trausti sótti verkærin, lét vaða einu sinni, ekkert gerðist og þá var honum öllum lokið. Hann hringdi á krúið sitt! Valli Jóns brást skjótt við kalli félaga síns og kom með gröfuna og var ekki lengi að redda málunum. Finnst ykkur ekki ferlega töff að hafa svona sambönd ;) Þegar Valli hafði reddað þessu með yllirinn fyrir okkur fengum við til okkar garðyrkjuráðgjafann Sigrúnu Ingu ( hún er líka í krúinu okkar) og leiddi hún okkur í allan sannleikann um það hvernig ætti að klippa tréin. Trausti fór rólega af stað en var greinilega ekki lengi að ná tökum á klippunum, eða þær að ná tökunum á honum. Hvort sem það var þá kom þetta ljómandi vel út. Eftir staðfestingu frá Sigrúnu um að tréin sem voru meðfram Hólabrautinni væru meira dáin en lifandi stungum við þau upp líka. Einhverjir hafa örugglega haft áhyggjur af ástandi okkar og ekki síst þegar Trausti réðst enn einu sinni gegn yllirnum þar sem hann var á planinu og nú með keðjusög. Okkur Sigrúnu fannst hann ekki svo ólíkur brjálaða karlinum í jólaleifinu :) Og hlógum dátt af aðferðum hans. Þannig voru nú þessir dagar í garðinum og vonandi verður þetta jafn gaman næst. Ætlum samt ekki að stinga neitt meira upp, bara bæta í sárin og setja ný og fallegri tré í stað hinna dauðu, vonandi eitthvað hraðsprottið þar sem mér finnst ég ákaflega nakin þegar ég er í garðinum núna. Það er ekki farið að laufgast svo mikið það sem ekki er búið að grafa upp og því hef ég ekki margt til að skýla nekt minni. Ég mæli með því að þið skellið ykkur í garðinn ykkar en til þess að það sé virkilega gaman þá verður maður að vera með krúið sitt með sér, eina gröfu og keðjusög ;) Hafið það gott.

 


17-Apr-2007 13:15 Hugrún Harpa

Það er ekkert meira að frétta en síðast svo í raun veit ég ekki hvað ég ætla að skrifa um. Við erum ekki búin að búa til síðu handa ófædda barninu eins og virðist vera alveg óhemju vinsælt að gera nú til dags. Þar skrifa konurnar raunarsögu sína yfir meðgönguna og birta svokallaðar bumbumyndir ! Nei við erum ekki búin að þessu og við ætlum ekkert að gera svona...og ef við erum lummó fyrir vikið þá so be it ! En ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að ég hrasaði inná eina svona síðu á barnalandi um daginn þar sem myndaalbúmið var stappað af myndum en barnið ekki fætt. Það voru sko myndir af bumbunni með nokkurra daga millibili, myndir af fötunum sem var búið að kaupa og myndir af herberginu sem var búið að innrétta og svo fínt var það að stílisti hlýtur að hafa verið ráðinn í verkið :) Ég þyki nú frekar skipulögð en ég á ekki roð í þessa manneskju. Ég er heldur alls ekkert viss um að rúmfötin á rúminu, vagninum og áklæðið á stólnum í herberginu og vöggunni verði allt í stíl!
En annað mikilvægt mál. Hver getur kennt mér að klippa tréin í garðinum mínum? Ég vil ekki að þau verði eins og hross hafi sloppið í garðinn! Sá hinn sami má líka kenna mér að reita arfa og gras úr beðum og væri ágætt ef farin væri ein umferð yfir öll beðin svo ég nái þessu alveg örugglega. Engin laun eru í boði en ég get þó boðið uppá hreinan ávaxtasafa og mariland kex.

 


10-Apr-2007 15:32 Hugrún Harpa

Páskarnir komu og fóru og ekkert markvert gerðist. Bækurnar eru á borðinu og ég er að rembast við að vinna skýrslu úr gögnum lögreglunnar. Hvað get ég sagt. Það hefur ekkert gerst síðan síðast!


02-Apr-2007 18:47 Hugrún Harpa

Ég trúði því í gær að Páll Magnússon væri svo tilfinningalaus að ætla að selja dúkkurnar úr stundinni okkar ! Fékk alveg verk fyrir hjartað og tár í augun. Hljóp samt ekkert en það var farið í óvenju marga göngutúra í gær :) Hugmyndaflugið var svo lítið eitthvað hjá okkur hjónum að þegar upp kom spurningin hvað eigum við að gera var svarið iðulega, út að labba og aftur og aftur. En það var alveg til að toppa góða helgi að enda hana á kvöldgöngu í Óslandi í gær, fallegur bjarmi af sólinni lá yfir fjöllunum, fuglarnir léku á alls oddi og ekki bærðist hár á höfði. Ég er ekki að skrifa þetta til að svekkja ykkur hin sem ekki upplifið slíka fegurð heldur aðeins að leifa ykkur að njóta þess með mér :)
Þegar ég kom út eftir kvöldmatinn í gær sat þröstur á grein í garðinum hjá nágranna okkar sem býr hér á móti. Ég sótti auðvitað myndavélina, náði að príla uppá steyptan vegg sem afmarkar garðinn hjá þeim, notaði allt það súmm sem myndavélin býr yfir og vonaði að allir myndu átta sig á því að áhugi minn snéri aðeins að þessum fiðraða. Þetta leit kannski ekki mjög vel út en ég get fullvissað ykkur um það að myndirnar eru allar fullkomlega löglegar til byrtingar á netinu :)

 


01-Apr-2007 22:38 Trausti

Við erum búin að setja inn nýjar myndir.
Ef ykkur vantar lykilorðið þá er um að gera að senda okkur bara tölvupóst.

 


25-Mar-2007 18:54 Hugrún Harpa

Rosaleg rigning í firðinum fagra en ég er nú eiginlega bara fegin. Rigningi er betri en skítakuldi og rok ! Og mun betri en snjór. Við Sesar fórum samt alveg tímanlega út að labba í morgun og sluppum við dembu og gátum því notið þess að hlusta á tjaldinn sem er orðinn áberandi. Þessi sunnudagur hefur farið í það að vinna verkefni í spss og lesa yfir verkefnið mitt. Búin að vafra á netinu í vonlausri leit að nytsamlegum upplýsingum um stillingar á myndavélinni minni. Eitthvað um ljósop og fleira flókið dót sem mig langar að læra á. Vonlaust að eiga svaka fína myndavél en kunna ekkert á hana. Ef einhver veit um góðar leiðbeiningar endilega láta mig vita (Canon EOS 350D). Svo verð ég nátturlega bara að skella mér á námskeið en ekki alveg tími í það núna. Ég hef ekki mikið meira að segja, það er allt við það sama. Verkefnin eru ekki enn búin, verða það vonandi 20. april og þá verður fjör, í smá tíma...svo koma prófin! Fór allt í einu að velta því fyrir mér hvað í andsk...ég ætlaði eiginlega að gera með þá menntun sem ég er að afla mér :) Er enn að hugsa málið. Eyjólfur er jú ekki enn hættur... ætla ég að sitja í kaffistofunni með honum Sigurgeir ?....Nei það gengur ekki er það? Ahhh...skítt með það ég finn mér eitthvað að gera. Náminu seinkar líka aðeins svo ég hef lengri tíma til að hugsa þetta mál. En nú er langt síðan ég sagðist ekki hafa neitt meira að segja svo nú get ég hætt.

Ein pæling í lokin. Haldið þið að MUSKO sem er með þessi brjáluðu tilboð (auglýsing í sjónvarpinu) sé samsetning á MEST- Húsasmiðjunni og BYKO? Ég var ekki svona klár að sjá þetta heldur Trausti :)

 


20-Mar-2007 8:49 Hugrún Harpa

Fáar og innihaldssnauðar færslur eru aðeins merki um eitt. Skólastressið hefur tekið völdin og heilinn ræður ekki við meira. Þó eina leiðin til að ná að skila öllum verkefnum sé að gera þau þá bara er það svo erfitt eitthvað. Á svona stundum ræður maður við fátt annað en að horfa út um gluggann. En það þýðir víst ekkert annað en að spíta í lófana og klára þetta helvíti svo maður verði nú einhvern tíman laus við þetta.

En jamm svona er rosalega mikið að frétta hjá okkur. Afmælisdagurinn kom og afmælisdagurinn leið eins og alltaf. Trausti var veikur í viku, ég prufaði að fljúga til RVK og aftur til baka á einum degi, og framundan er mæðraskoðun á morgun. Jabadabadú....meira hefur ekki gerst hjá okkur og ekki er mikið framundan.

Það er kalt úti.

 


05-Mar-2007 9:59 Hugrún Harpa

Mars er mættur og eins og alltaf fer ónotalegur hrollur um mann þegar óliðnar vikur skólaársins eru taldar. Þetta gerist alltaf í mars alveg eins og það gerist alltaf í mars að ég verð árinu eldri. Á hverju ári segist ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt næst þegar ég á afmæli, svo líður árið, þá kemur hrollurinn aftur og þegar afmælisdagurinn rennur upp sigrar engillinn púkann og ég fer að skrifa ritgerð eða gera eitthvað sem samviskusamur námsmaður myndi gera. Mikið sem krílið er heppið að vera sumarbarn. Getur bara haldið þetta fína grillpartý og trampolínflipp í friði :)

Trausti er farinn að vinna á Mýrunum og er ekki laust við að ég óttist um drenginn á þeim slóðum. Skyttur á hverju horni sem skjóta allt sem fyrir verður sama hvort það er sært eða ósært, tek það fram að það eru þó ekki alltaf heimamenn. Það er ekki svo að allir séu með vopn í hendi í sveitinni. Ég bað hann samt um að fara varlega þegar hann fór út úr húsi í morgun! Hann komst alla leið á rauðu druslunni sem var sótt í Öræfin í gær og hún hefur staðist fyrsta prófið, hún komst frá Reykjavík til Hornafjarðar svo eitthvað hlýtur að vera í hana varið. Nokkurn grun hef ég nú um að vökul augu sveitamanna verði með honum og eflaust fjölgar til muna bíltúrum suðursveitunga yfir mörkin til að vera vissir um að geta sagt frá því þegar spurðir hvað er að gerast og hver er að verki.

Fermingarmótið var rosalega skemmtilegt og afskaplega vel heppnað. Ég held að ég hafi líka bara komið nokkurn veginn ósködduð frá þessu öllu saman og hann Trausti líka. Við skemmtum okkur mjög vel bæði tvö en fórum þó snemma heim þar sem við vorum bæði farin að gapa og nudda augun. Mætingin hefði mátt vera betri en það var fámennt og góðmennt.

 


20-Feb-2007 16:41 Hugrún Harpa

Það er eiginlega allt við það sama hérna hjá okkur. Fórum í 20 vikna sónar á föstudaginn sem var alveg ógurlega gaman:) Fengum þessar fínu myndir af krílinu sem er nátturlega alveg bráð myndarlegt. Það var þó ekkert að gera ljósunni auðvelt fyrir heldur snéri það sér í hvert sinn sem hún var við það að ná góðri mynd. En með smá þolinmæði þá tókst að ná góðum myndum. Eins og vanalega þá var Reykjavíkurferðin stutt og við á fullu spani allan tímann.

En annars er það bara skóli og aftur skóli og ekkert merkilegt að frétta.

 


07-Feb-2007 13:00 Hugrún Harpa

Jag ringer på fredag.....

Ég hef enga krassandi sögu af þorrablóti þar sem ég fór ekki, aðallega vegna hins ógurlega ótta við það að vera dregin í hringdans og lenda þá í því einu sinni enn að dansa við einhvern sem mig langar ekkert að dansa við. Ég nenni ekki að tala um hossubrúnna eða hver af leiðunum þremur er vænlegust. Til hvers að tala um 11-11 nema að benda á þetta flotta myndband sem var gert um verslunina ( það er linkur á það á síðunni hjá Steina og Sigrúnu)....En hvað á ég þá að skrifa um? :) Síðustu daga hef ég verið óvenju öflug í lærdómnum. Held svei mér þá að ég sé að hrökkva í gang. Ekki seinna vænna! Fer að nálgast skil á stórri ritgerð núna í febrúar. Á milli þess sem ég er að læra hlusta ég á gott lag með Creed og læt mig dreyma um sumarið sem ég mun taka opnum örmum. Það eru spennandi tímar framundan og verður sumarið ef allt gengur vel það besta ævinnar. Það er ekki annað hægt en að finna til tilhlökkunar. En iðulega þegar ég er í nokkurn tíma búin að láta mig dreyma um sumarið er mér litið á skólabækurnar og það rifjast upp fyrir mér að það er bara byrjun febrúarmánaðar og það er fyrsta mál á dagskrá að klára prófin og reyna að gera það án þess að " drulla á sig ". Ég átta mig á því að það er kalt úti, það er ekki rétti tíminn til að kaupa sumarblómin og það er ekki vænlegt að setja grænmeti niður í frosna jörð. Ég má alveg leggjast í grasið en ég fæ bara útbrot af kulda og nefið er enn stíflað sem er merki um að það er ekki komið sumar! Þegar ég hef áttað mig á öllu þessu er ekkert annað að gera en að taka upp bækurnar og halda áfram að læra.

 


01-Feb-2007 13:20 Hugrún Harpa

Ekki vil ég vera valdur af svekkelsi Helgu og því skrifa ég í dag. Ég vona þó Helga að þér sé sama hversu innihaldsríkt það er sem þú getur lesið hér :) Þennan morguninn var ég í vélsmiðjunni þar sem ég var búin með bremsuklossana, hurðin var að detta af bílnum og eitthvað var stýrið að titra. Þarna var ég í eina og hálfa klukkustund. Mér leiddist þó ekkert, Beggi, Geiri og Jón Braga sáu um það að stytta mér stundirnar á meðan Helgi vann eins og cracy að því að laga kaggann. Ég fór út með bros á vör og bíllinn er eins og nýr og buddan grét ekki einu sinni. Hvað getur það verið betra. Jú hefði verið betra ef endurvinnslan hefði verið opin og ef ég hefði sleppt því að særa hann Grétar vin okkar. En held að hann hafi verið búinn að fyrirgefa mér þegar ég var nánast búin að kyssa á honum tærnar og það fyrir framan fólk. Var á endanum búin að sannfæra hann um að mér þætti voða gaman að hitta hann þó ég hafi óvart sagt nokkuð sem gaf annað til kynna.

Ég var að velta einu fyrir mér þar sem ég er þessa dagana alltaf ein heima í hádeginu og í eitt skiptið keypti ég mér 1944 að borða. Eins og flestir vita þá kaupir maður 1944 bara þegar maður hefur ekki tíma eða nennir ekki að elda sér eitthvað. En þar sem ég var að gæða mér á annars flokks 1944 kjötbollum fór ég að velta því fyrir mér hvernig kokkur það væri sem gerði 1944 réttina. Að mínu mati þá er þetta allt saman annars flokks matur og maður veltir fyrir sér hvernig maturinn sé heima hjá 1944 kokkunum. Er hann líka annars flokks? Getur hann virkilega ekki gert bjúgu almennilega? Ég hef aldrei fengið eins vond bjúgu eins og úr 1944 pakka. En nóg um 1944 það er löngu liðin tíð.

 


25-Jan-2007 8:43 Hugrún Harpa

Þið miklu gáfumenni sem lesið þessa síðu....hvar fæ ég yfirstrikunarpenna og blöð í prentarann eftir að það er búið að pakka öllu saman í 11-11 ? Ég klikkaði á að kaupa þetta þegar ég var í bænum og nú fæ ég að gjalda fyrir það. Og nú ef ykkur dettur ekki neinn staður í hug hér á Höfn getið þið sem eruð staðkunn á Djúpavogi sagt mér hvort mögulegt er að fá slíkan varning þar. Ég vil kanna alla mína kosti áður en ég hringi á bóksölu stúdenta og panta mér yfirstrikunarpenna! En fyrir utan þessar vangaveltur er morguninn búinn að vera góður. Cheeriosið rann ljúft niður og appelsínan þar á eftir. Trausti liggur að vísu í rúminu með jahhh....verður maður ekki bara að segja það hreint út einhverja skítapest! Prentarinn er búinn að dæla út úr sér verkefni dagsins en það er nátturlega ekki þar með sagt að ég sé byrjuð eins og þið sjáið. En þetta er nú allt að koma, komið heitt kakó í bollann, bækurnar komnar á borðið og andinn er alveg að koma held ég bara. Þangað til næst....tjáá....

 


24-Jan-2007 15:48 Hugrún Harpa

Skólabækurnar léttast ekkert og ég er farin að reyta hár mitt og ekki var það mikið fyrir. Hver sá sem getur sagt mér eitthvað um þáttagreiningu og allt sem henni fylgir er velkominn í heimsókn. Hinum er held ég ráðlegast að vera ekkert að koma. Nei segi svona...... þarf svo sem ekki að hafa áhyggjur af því að gestunum fækki eitthvað held að það sé ekki mögulegt :) Þáttagreiningin er ekki ein um það að rembast við að gera mér lífið leitt því veðurguðirnir ákváðu að spila fram öllum sínum fallegustu spilum í dag...bara svona fyrir mig. Ég var við það að missa stjórn á mér og hlaupa út með myndavélina en ég hafði það! Held ég hafi aldrei þurft að pína mig svona innilega til að læra eins og síðustu daga. Það er svo mikið annað að hugsa um :) Ég fæ reglulega þessa einkennilegu löngun til þess að skoða barnadót þessa dagana...veit ekki hvað er í gangi. En nú hef ég ekki lengur þolinmæði í þetta svo ég ætla að fara að fá mér eins og eina appelsínu.

 


17-Jan-2007 10:39 Hugrún Harpa

Búin að fara til Reykjavíkur og eins og alltaf þá var ferðin fremur stutt. Þannig er það bara með okkur Trausta. Hittum Tengdó, Steina og Sigrúnu og Dóru og held að okkur hafi bara teikist að dreifa tíma okkar nokkuð vel með fólkinu okkar. Sáum líka lítið krútt sem klóraði sér í eyranu, setti hönd undir kinn og vinkaði ;) Eins og ég geri í upphafi hverrar annar fór ég og keypti bækur og eins og alltaf grét buddan mín með hljóðum. Eitt er þó öðruvísi en áður hefur verið, ég held að bækurnar séu stærri og ógnvænlegri en áður. Svo er ég ekki frá því að þær séu þyngri í hönd þegar þær eru opnar, þær eru ekki jafn þungar þegar þær eru lokaðar. Kannski kannast einhver við þetta eða kannski er þetta bara ég. Er að hlusta á Enya og tónlistin fær mig til að langa til að hverfa inní minn eigin heim og þurfa ekki að hugsa um neitt nema það sem skemmtilegt er. Allt nema skólann! Ég hef greinilega ekki náð að byggja mig nægilega vel upp andlega um jólin :) Verður maður ekki að vera andlega reddý til að takast á við Karl Marx einu sinni enn, í enn einu faginu er hann umræðuefnið. Gerði enginn neitt sniðugt eftir að Marx dó ég meina það :) Nei ég er nú ekki alveg svona illa haldin :) Lífið er ekki alveg svona erfitt hjá mér :) Nema þegar ég horfi á bækurnar. En ef ég sleppi því bara þá gæti þetta ekki verið betra ;)

 


10-Jan-2007 10:13 Hugrún Harpa

Það snjóar og snjóar.... ég sem var að vona að það yrði gott færið um helgina. En ég vil taka það fram að ég held enn í vonina. Þarf að fara til Reykjavíkur að hitta kennara og versla föt. Fór að velta því fyrir mér í gær hvort við Trausti værum eins og huldufólkið. Ég var spurð hvort ég byggi á Höfn og hvort ég væri með mann. Við förum nú alveg út úr húsi af og til. Hélt líka að hér vissu allir allt og þyrftu því ekki að spyrja :) Svo hef ég líka velt því fyrir mér hvort ég sé frávik og efni í BA verkefni þar sem fólk rekur upp stór augu og segir við mig ertu ENN með sama manninum!!!! Það er svona eins og það sé lummó.... en mér finnst það ekki. Er sérlega stollt af því að vera með svona gulli eins og Trausta :) Ætli fólk yrði ekki eins hissa ef ég myndi segja að ég væri búin að eiga 4 menn á 7 árum og börn með tveimur þeirra og ólétt eftir þann þriðja sem hefði svo haldi framhjá mér með vinkonu minni og við værum því skilin og ég einstæð móðir í peningaþröng??? Er þetta normið í dag??? Nei ég neita að trúa því! Tek það fram að ég er ekki með neinn sérstakann aðila í huga þegar ég skrifa þetta!!!! Það má enginn taka þetta til sín og halda að ég sé að skrifa um hann/hana þó sá hinn sami sé kannski búinn að eiga 4 maka á 7 árum og það allt. Ég þekki engann þannig :) Alla veganna ef ég er frávik þá er ég bara stollt af því. En nú ætla ég að fara að gera eitthvað annað. Eitt að lokum, ef þú ert ekki ánægð/ur með þann stað sem þú ert á í lífinu, breyttu því þá! -Þú ert ekki tré! Með þessu kveð ég ;)



02-Jan-2007 20:18 Hugrún Harpa

Þá er árið 2007 komið og vonum við að það verði ykkur öllum farsælt ár. Lífið hefur verið afar rólegt hjá okkur hjónum og höfum við eytt síðustu dögum bara hér heima í rólegheitum. Fórum í göngutúr með Steina og Sigrúnu í Laxárdalnum. Erum búin að vera aðeins á Mýrunum og gert svona eitt og annað. Trausti var ansi sifjaður í morgun klukkan sjö þegar klukkan hringdi og mál var að mæta í vinnu aftur. Hann er búinn að vera í fríi síðan 15 des og höfum við aldrei verið svo lengi saman í fríi. Ótrúlegt en satt þá er ég farin að bíða eftir því að fá einkunnir en eitthvað fer nú minna fyrir því að ég bíði eftir að byrja í skólanum. Kannski kemur það seinna, eða kannski ekki. Hver veit. Nenni þessu ekki lengur. Komið að ykkur að segja eitthvað sniðugt.

 


29-Dec-2006 17:15 Hugrún Harpa

Langt síðan síðast og eitt og annað hefur átt sér stað. Síðast var ég að skrifa að fyrsta prófið væri búið, það fór svo að það var eina prófið sem ég tók þessa önnina. Að kveldi 16 des veiktist ég og endaði með því að ég var send til Reykjavíkur þar sem læknirinn hér var alveg hættur að skilja hvað væri að mér. Það fór því svo að ég var á landspítalanum þegar ég átti að vera í seinna prófinu. Þó próf séu ekki skemmtileg þá hefði ég nú frekar viljað vera í kennslustofunni í FAS að reyna að kveikja ljósin :) Ég komst að því að sjúkravélin er mun betri en farþegavélin sem við komum heim með! Allt fór vel og við komumst heim fyrir jólin og ég þarf bara að fara vel með mig. Við vorum tvö ein um jólin eins og verið hefur síðustu ár. Elduðum mikinn og góðann mat. Ég gat að vísu ekki mikið borðað svo Trausti er enn að borða afganga af hamborgarahryggnum og hangikjötinu, held að honum leiðist það samt ekkert. Erum búin að hafa það gott um jólin. Trausti var ekki að vinna milli hátíða svo við höfum bara notið þess að vera saman í fríi, gerist ekki oft. En annars hef ég ekkert að segja. Bara gleðileg jól allir og gleðilegt nýtt ár.

 


16-Dec-2006 10:49 Hugrún Harpa

Þá er fyrsta prófið búið og það var nú ansi skrautlegt :) Ég var alveg rosalega stressuð og var með óráði fyrsta klukkutímann...gaman af því. Þá er allt á milljón í mínum heimi! Þegar ég snappaði út úr því fór ég að hafa áhyggjur af tímanum sem var mjög svo knappur. Ég hef aldrei nýtt próftímann svona rosalega. Og ekki var það til að hjálpa að ljósin í stofunni voru alltaf að slokkna þar sem það var ekki mikil hreyfing á mér og ljósin eru með svona hreyfiskynjara eða eitthvað:) Þannig að ég varð alltaf að standa reglulega upp og hlaupa útá gólf til að láta ljósin kvikna. Það var ekki nóg að veifa höndum, var búin að reyna það :) Já svona skemmtilegt var þetta nú. Seinna prófið mitt er svo á mánudaginn. Ég á því ekki að vera að skrifa hér inn heldur rifja upp efnið og það er ég farin að gera. En bara svona að segja ykkur það, það er snjór hér hjá okkur :)


04-Dec-2006 12:08 Hugrún Harpa

Ákaflega góð helgi er að baki. Trausti var heima alla helgina :) Á laugardaginn lærði ég á fullu og kláraði loksins stóru ritgerðina sem var þessa önnina. Trausti vann í veggnum í stofunni á meðan. Við skelltum okkur svo á jólahlaðborð á Smyrlabjörgum með Jóhönnu og Geira. Skemmtum okkur konunglega og maturinn var með besta móti. Góður maður tók það að sér að spila á píanó og nikku á borðhaldinu og allt í einu var eins og ég hefði fermst í gær og söngstundirnar í Mýraskóla sóttu á mig. Trausti og Geiri nutu ekki aðeins tónlistarinnar heldur var píanistinn fyrir þeim hið besta skemmtiatriði. Í gær áttum við rólegan og góðan dag. Vorum viðstödd þegar tendrað var á jólatrénu. Fengum okkur rúnt að skoða jólaskraut í bænum. Verð nú að segja það að jólabrautin er ekki að standa sig, bara minnsta skrautið hér held ég :) Segi ég sem er ekki búin að setja neitt skraut og liggur ekkert á. Gerðum þennan fína aðventukrans og drukkum malt appelsín. Já það er búið að vera svona rosalega gaman hjá okkur en nú er alvaran tekin við aftur og ég geri allt sem ég get til að öðlast meiri þekkingu um Marx, Weber, Durkheim og Meed.

 


01-Dec-2006 8:27 Hugrún Harpa

Fimm beljur af snítibréfi búnar, nefið að flagna af en hvað um það, er ekki dagur flagnaða nefsins....eða var það rauða, jahh hvort sem það er þá er mitt hvort tveggja. Allt í rassgati í skólanum. Þetta er ástandið á heimilinu. Það er allt bragðlaust og ég er að falla á tíma með að kippa þessu í lag fyrir jólahlaðborðið á Smyrla á morgun. Þetta byrjaði á þriðjudaginn svo ég hélt nú að þetta yrði pottþétt búið á morgun en þetta fær maður fyrir að vera bjartsýnn. Jóhanna er að öllum líkindum búin að bjarga jólunum. Pantaði uxahalasúpu í niðursuðudós sem er fyrir 30 manns. Þannig að það er nóg handa mömmu og pabba líka :) Við hjónin förum á hlaðborð á morgun með Jóhönnu, Geira og Helga litla verður örugglega líka með. En það er ekkert meira að frétta í rigningunni. Jólamánuðurinn er kominn hér eins og hjá ykkur.

 


27-Nov-2006 9:29 Hugrún Harpa

Fyrir ekki svo löngu síðan sagði ég að ég myndi örugglega ekki blogga fyrr en eftir lokapróf. Ég held ég hafi bara aldrei verið eins dugleg að blogga eins og eftir þessa yfirlýsingu mína. Ekki veit ég hvað veldur. Ætli það sé ekki bara þessi óstjórnlegi skólaleiði sem er að hrjá mig þessa dagana. Ég kvaðst líka ætla að halda jólaskapinu í skefjum en ég var varla búin að rita þau orð þegar jólaskapið helltist yfir mig og nú held ég að það sé bara rétt að þegja!

 


25-Nov-2006 10:40 Hugrún Harpa

Það er ekki svo langt í jólin núna, bara tvö hlutapróf, ein ritgerð og tvö lokapróf og þá eru bara jólin komin :) ÉG hafði nú samt hugsað mér að halda jólaskapinu í skefjum eins lengi og ég get. Það auðveldar próflesturinn. Við fórum smá skotferð í bæinn á fimmtudaginn og komum aftur í gær. Skilaði ritgerð sem ég tel nú að hafi ekki verið til mikils sóma en samt gott að vera búin að skila henni. Fór á bókhlöðuna og reyndi þar að útskýra vanda minn fyrir mjög svo geðvondri konu á fjórðu hæðinni. Keyptum eitthvað fyrir jólin og brösuðum svona eitt og annað. Við gistum hjá Steina og Sigrúnu og að vanda var vel hugsað um okkur. Ég fékk mikið áfall á föstudaginn þar sem við komumst að því að uxahalasúpa er ekki lengur seld í Bónus og þá veit ég ekki hvar ég fæ jólasúpuna. Það finnst það kannski sumum skrítið en jólin bara koma ekki fyrr en maður fær uxahalasúpuna :) Nei það er nú kannski ekki alveg svo en hún er hluti af jólunum. En ég hef ekki gefið upp alla von. Sigga systir Trausta er í Danmörku og ætlaði að gá hvort hún fengi súpuna fyrir okkur :) Ef þið sjáið uxahalasúpu endilega hafið okkur í huga. En nú verð ég að fara að skrifa ritgerð og vona að ég klári hana fyrir jólin. Veit að þetta er leiðinleg færsla en það er bara ekki neitt að gerast.

 


16-Nov-2006 10:57 Hugrún Harpa

Ég sit í sófanum inni í stofu og Sesar situr hjá mér...á gólfinu sko og starir á veðrið sem er úti. Það er rok og fíkur smá fönn. Það er mjög huggulegt veður úti ef maður er inni :) Cortes er kominn á fóninn og ég er að læra aðferðafræði 2, nánar tiltekið allt um aðhvarfsgreiningu. Já Cortes er kominn á fóninn og það þýðir bara eitt, Hugrún er orðin stressuð fyrir próf og skil á ritgerð og þarf að reyna að róa sig. En ég get sagt ykkur frábærar fréttir...Það er að koma annar diskur með Cortes í febrúar :) Mikið sem ég hlakka til. Ég er samt ekki enn komin með ógeð af hinum disknum þó ég hlusti MIKIÐ á hann.

Það voru einhverjir endalausir brestir í húsinu í rokinu í nótt og Trausti karlinn átti bágt með svefn. Gekk ekki einu sinni að snúa sér á heila eyrað. Þegar hann var svo farinn í vinnuna kom ansi mikill brestur og ég kíkti út og sá þá að ein fjölin í þakkantinum var orðin laus. Ég hringdi nátturlega í smiðinn minn sem kom ásamt liðsauka og hann og Raggi vinur hans redduðu þessu eins og ekkert væri. Eftir að Trausti og Raggi kynntust þá held ég að þeir geri ekkert einir :) Raggi var að hjálpa Trausta um daginn að færa kæliskápinn svo hægt væri að tengja öbbann og ég sver það þeir hjálpuðust að við að skipta um kló :) jamm annar hélt og hinn var á skrúfjárninu. Það er sko samvinna í gangi þar á bæ sem er frábært. Þannig að gott fólk ef þið verðið einhvern tíman spurð hvað þarf marga smiði til að skipta um kló þá eru tveir nóg. En ætli það sé ekki rétt að halda áfram að læra og taka til mat handa karlinum.

 


13-Nov-2006 8:33 Hugrún Harpa

Kannski að ég bloggi aðeins. Trausti var heima um helgina þar sem veður var svo vont að ekkert var hægt að vinna. Megnið af helginni fór í það að skrifa ritgerð hjá mér en hún er nú samt ekki búin. Trausti var að vinna í veggnum í gær og þetta er allt að gerast :) Við keyrðum til RVK á fimmtudaginn og aftur heim á föstudaginn. Ætluðum að taka flugið en þar sem veður átti að vera vont þá var bara rokið af stað á bílnum til að ná á undan veðrinu. Stærstu fréttirnar eru þær að það er búið að tengja örbylgjuofninn :) Já við fluttum hingað í mai og það var bara ekki enn búið að tengja blessaðan öbbann. Annars er bara ekki mikið að frétta :) Mér finnst skólabækurnar þykkna með hverjum deginum. Spurning hvort ég ætti að fara oftar út að fá mér ferskt loft og sjá hvort ofskynjanirnar minnki ekki. En nú hef ég bara ekkert meira að segja.

 


03-Nov-2006 8:11 Hugrún Harpa

Ekki er nú mikið um skrif á þessari síðu okkar. Það er ekki vegna þess að það sé ekkert að gerast heldur er bara það mikið að gerast að við erum ekki að hugsa um að skrifa eitthvað á veraldarvefinn. Ég er búin að fá út úr þessum tveimur prófum sem ég er búin að fara í á önninni og það gekk bara ljómandi. 8,00 og 8,75. Og svo er próf í dag í fjölmiðlafræðinni.....Hlakka ekki til en það hlýtur að sleppa. Ég er á fullu að skrifa ritgerðir sem ég þarf að skila núna í nóv. Helgin og væntanlega næstu helgar koma til með að fara í það. Já verið ekkert að biðja mig um að blogga þar sem ég get ekki bloggað um neitt annað en skólann og það er ekkert gaman að lesa það :) Það féllu nokkur snjókorn hérna á Höfn í vikunni en það var nú ekki einu sinni nógu mikið til að jörðin yrði hvít. Það kom nú samt smá svona jólapúki í mig þegar ég sá snjóinn. En nú nenni ég ekki að skrifa meira. Er að fara að lesa yfir fyrir prófið. Ætli næsta færsla komi ekki 18.des þegar ég er búin með seinna lokaprófið.

 


20-Oct-2006 9:32 Hugrún Harpa

Næstum öll laufin farin af trjánum og það var skítkalt að fara út í gær til að fara í FAS að taka prófið. Ég er nefnilega búin að vera inni alla þessa viku að reikna og reikna í aðferðafræðinni. Samt veit ég ekkert hvernig prófið gekk. Það var eiginlega hálf skrítið að koma út í gær. Búin að vera tvær vikur í bænum og loka mig inni í eina viku, ég var eitthvað rosalega lost. Það er annars bara ekki neitt að frétta. Trausti og Sesar eru að vinna og ég er að læra :) Í fréttum er enn verið að tala um hleranir og umræður um hvalveiðar hafa verið að koma sterkar inn. Einholtsfjölskyldan er væntanleg í heimsókn í kvöld. Jóhanna og Helga komu í heimsókn í vikunni og Snæsa og Guðmundur nýttu tækifærið og komu að kíkja á skutlurnar. Jamm hér er allt fullt af börnum :) Nenni ekki að skrifa meira, er að fara að læra.

 


15-Oct-2006 20:45 Hugrún Harpa

Já það er satt hjá Sigrúnu Ingu. Við komum heim í gær, stoppuðum á Smyrla að kíkja á Jóhönnu og co. Það var verið að skíra litlu stúlkuna og fékk hún nafnið Helga Kristey. Við stoppuðum svo líka á Hlíðarbergi og fengum þar fashana að borða sem var rosalega gott. þar á bæ voru allir galvaskir. Við fórum svo heim og tókum úr bílnum áður en við skriðum uppí rúmið okkar.....mikið rosalega var gott að komast í rúmið sitt og SOFA...ég svaf alveg til hálf níu í morgun, vaknaði bara einu sinni. Átti eitthvað erfitt með svefn á meðan ég var í RVK svo það var gott að sofa :) Við erum svo bara búin að liggja í leti í dag. Trausti búinn að elda og baka handa mér. Er eitthvað aðeins að dekra mig :) Hann er alltaf svo sætur í sér. En þetta er nú ekki merkileg færsla, enda ekki frá miklu að segja. Ég lærði aðeins í dag og svo er bara á planinu að leggjast yfir bækurnar á morgun eins og venjulega. En ein spurning gott fólk, hafið þið verið hleruð? nei bara að spá það er víst í tísku þessa dagana. Voru annars ekki allir hleraðir hér á árum áður með sveitasímanum ?

 


12-Oct-2006 17:30 Hugrún Harpa

Halló....þetta er blogg :) Einhver var að halda því fram að ég væri enn í Odda en svo er ekki. Ég er hins vegar enn í Reykjavík og andinn hefur bara ekki komið yfir mig á meðan dvöl minni hefur staðið. Trausti er líka búinn að vera hjá mér þannig að mér hefur ekkert leiðst eins og þegar ég var ein í horninu í Odda :) Við vonum að við komumst heim um helgina og þá kannski fer ég að skrifa eitthvað meira, eða kannski bara ekki. Veit ekki. En þetta var blogg dagsins..... ;)

 


03-Oct-2006 14:59 Hugrún Harpa

Halló...það er Hugrún í Odda, þriðju hæð úti í horni. Hvað er að frétta af ykkur. Það er helst af mér að frétta að ég er í skólanum. Það hefur ekki oft gerst þessa önnina. Búin að sjá það að ég þarf ekki að sakna neins. Hafði leitt hugann að því hér áður hvort ég ætti eftir að sakna háskólans en nebb svo er ekki. Ég er í augnablikinu búsett hjá henni Dóru á Eggertsgötunni og er alveg skemmtilega stutt til Steina og Sigrúnar :) Ég hef í raun ekkert merkilegt að segja. Á morgun á ég stefnumót við félaga mína úr krónunni á Selfossi þar sem við erum að fara að borða fyrir starfsmannasjóðinn okkar. Ég á svo stefnumót við manninn minn um næstu helgi en þessi elska veit að honum er svo innilega velkomið að flýta því stefnumóti ef honum hentar svo. Sakna hans alveg ferlega mikið. Hann Sesar okkar átti afmæli í gær og varð þá 6.ára....stór strákur ;) Hann er eflaust mjög sár útí móður sína að vera ekki til staðar á þessum merka degi og baka eins og eina köku en það geri ég bara þegar ég kem aftur heim í kotið okkar. Eitthvað voru Sveinn og Valli búnir að rukka Trausta um köku vegna afmælis hundsins en ég hef greinilega alveg brugðist þeim líka. Þetta er ferlegt, veit ekki hvernig ég get sofið með allt þetta á samviskunni. En nú ætla ég að fara í bóksöluna að kaupa blöð og plastmöppu. Hafið það gott og ástarkveðjur til ykkar Trausti og Sesar :) Elska ykkur ;)

 


26-Sep-2006 19:05 Trausti

Heil og sæl.

Ég vil byrja á því að vekja athygli fólks á því að það eru komnar nýjar myndir í albúmið hjá okkur, danmerkur ferðin ,nokkrar myndir af Guðmundi Reyni, frá gönguferð Hugrúnar og Sesar um síðustu helgi í Stafafellsfjöll og svo frá því er við hjónin fórum í Hvalnes. Enn er hægt að fá sent lykilorð af myndasíðunni ef fólk vill, við höfum ákveðið að hafa það opið aðeins lengur.

Við Sesar erum einir heima í kotinu um þessar mundir og líkar okkur það MJÖG illa. Hugrún skrapp í bæinn í gær og kemur aftur á morgun, sem betur fer. Við bruggðum á það ráð eftir vinnu að leigja okkur bara DVD mynd, Inside man heitir hún og er með Denzel Washington í aðalhlutverki, alltaf verið hrifinn af þeim leikara.

Jeff Who? er í spilaranum, geggjað góður diskur frá þeim drengjum. Mæli með honum.

Já var næstum því búin að gleyma, Sigga "litla" stóra systir mín var að eignast litla stelpu í gær :) og svo giftu þau Stinni sig á laugardaginn. Ég er alveg viss um að þessi litla stelpa þeirra á eftir að verða mjög svo ákveðin og hún á eftir að stjórna þessum 4 frændum sínum með harðri hendi þegar hún eldist. Ja, sennilega sleppur Róbert Aron, hann er orðin það gamall. :)

Hafið það gott.

 


24-Sep-2006 8:14 Hugrún Harpa

Kominn nýr dagur. Gestabókin virkar ekki enn og Trausti er ekki heima til að reyna að laga hana. En myndirnar sem voru alveg að koma í allt sumar eru komnar:) Þið þurfið ekki að vera feimin við að senda okkur póst og fá aðgang. Myndir úr Danmerkurferðinni koma svo vonandi fljótlega en þið vitið hvað það þýðir ;)

Það virðist vera hið ljúfasta veður svo ég, Sesar og myndavélin ætlum að byrja daginn á því að fara í göngutúr. Veit ekkert hvert við ætlum. Maður þorir varla að fara til fjalla af ótta við að mæta mönnum að elta rollur og menn að elta rollur eru oftar en ekki í vondu skapi:) Nei nei það er nú ekki alveg satt en ég vil nú ekki þvælast fyrir mönnum svo ætli ég fari ekki bara í fjöruferð.

En sólin er komin á gluggann og Sesar og myndavélin bíða svo ég læt þetta nægja í bili.

 


23-Sep-2006 17:29 Hugrún Harpa

Ef þú ert ekki í væmnu skapi ekki lesa þetta og EKKI segja að ég hafi ekki varað þig við þegar þú ert búin að lesa þetta :)

Ég gerði krækiberjahlaup í dag, það er þunnt en þetta er líka frumraunin þannig að ég bjóst ekki við neinu glæsilegu. Er ég orðin gömul vegna þess að ég var að gera krækiberjahlaup í dag? Og ribsberjahlaup um daginn og ég reikna með að taka í slátur þetta haustið? Nei er það? Er ég ekki bara svona rosalega mikil húsmóðir? En það að vera húsmóðir hljómar eitthvað svo gamalt :) Nei nei ég er ekkert gömul :) Ég er að upplifa bestu ár ævinnar.... Hvað er maður búinn að heyra þetta oft í gegnum skólagönguna " þið eruð að upplifa bestu ár ævinnar, njótið þess"....Þetta með bestu ár ævinnar, það er ekki hægt að segja að það sé einhver ákveðinn tími. Það eru ekkert endilega framhaldskólaárin eða háskólaárin (Þegar maður borðar milsnu í morgunmat) eða eftirlaunaaldurinn þar sem maður á orðið húsbíl og getur ferðast um landið og spillt barnabörnunum. Bestu árin eru þegar manni líður svo vel að maður leggst útaf og hugsar um það hvað maður er heppinn. En hvenær gerist það? Í mínu tilviki kom sá tími þegar ég leyfði loksins hjartanu að taka völdin og gaf skít í það að gera allt eftir bókinni. Hvernig mér tekkst upp með allt sem ég er að gera kemur í ljós en ég get þá alltaf sagt með vissu að mér líður vel og það er mikilvægara en allt. Kannski verð ég ekkert lengur en aðrir að klára skólann, kannski verð ég lengur en ég hefði getað verið en einhverra hluta vegna þá hef ég ekki svo miklar áhyggjur af því þar sem mér líður vel.

Af hverju er alltaf verið að ákveða fyrir fólk í dag hvernig það á að gera hlutina? Við eigum öll að fara eftir sömu brautinni eins og það sé bara til ein leið sem gerir alla hamingjusama. Við lærum helling á því að fylgja þessari braut en ég held að við lærum líka helling um lífið, heiminn og okkur sjálf ef við fylgjum hjartanu þó það fari aðeins út fyrir þessa hefðbundnu braut. Vinkona mín er 22 ára og fékk stúlkuna sína í hendurnar 11.sept, þetta er ekki eftir bókinni en ekki held ég að nokkur hlutur sé til sem getur veitt henni jafn mikla hamingju og þessi litla stelpa. Vinkona mín þorði að fylgja hjartanu og ég er stolt af henni fyrir það :) (Vinur minn á líka stelpuna...hann Ásgeir og ég er líka rosa stolt af honum :) Má ekki draga úr hans hluta í þessu barni). Hjá sumum vill hjartað fylgja bókinni. Hjá mér var það ekki en ég þrjóskaðist við vegna þess að ég var hrædd við það að fólk yrði svo hneikslað á mér. En ég komst að því að mér líður betur ef ég fer líka eftir því sem hjartað segir sama hvað öðrum finnst um það.

Ég var að lesa þetta og kannski er ég eftir allt saman orðin gömul :) Þegar maður situr einn heima í sófa gefst manni tími til að hugsa svona, Trausti er ekki heima svo ekki gat ég sagt honum þetta þannig að aumingja þið. Þetta er ferlega væmið en satt engu að síður. Við ráðum því sjálf hvenær bestu árin eru! Ég er alveg að gugna á því að setja þetta inn en ég ætla að láta þetta standa. Skemmtilegra blogg næst!

 


19-Sep-2006 13:52 Trausti

Komi þið blessuð og sæl.

Nú höfum við bruggðið á það ráð að setja lykilorð á myndasíðuna okkar og ef þið viljið fá notendanafn og aðgangsorð þá endilega bara senda okkur póst. Annars er nú lítið af okkur að frétta. Ég er veikur heima og hef nýtt tímann í að setja inn nýjar myndir og lagað svona eitt og annað á síðunni. Fór inn á stopp.is áðan og skrifaði mitt nafn á listann. Mæli með því að allir geri slíkt hið sama og reyna að minnka þennan hraðakstur. Svo að lokum langar mig að minna fólk á að kvitta í gestabókina hjá okkur, það er alltaf voða gaman að sjá hverjir kíkja hérna inn. Þangað til næst........

 


15-Sep-2006 8:26 Hugrún Harpa

Sólin er ekki hjá okkur í dag svo nú lærum við bara fyrir próf. Klukkan 15:00 í dag er það verk mitt að setjast við tölvuna og klára eitt fjölmiðlafræðipróf fyrir klukkan 16:00. Skólinn gengur svona upp og niður, fer aðallega eftir því hvernig mér gengur að lesa. Ég sit þó alltaf yfir bókunum frá 8 til 17 en stundum er ég ekki að skilja svo mikið af því sem ég er að lesa. Ég hef fengið þau svör frá námsráðgjöfinni í HÍ að ég get ekki fengið þær glósur sem þau eru að kaupa af nemendum fyrir aðra nemendur þar sem ég er ekki fötluð. Ég sem hélt að Reykvíkingar teldu það vera fötlun að vilja búa hinumegin við Hellisheiði hvað þá þegar maður er kominn svona langt frá ÖLLU eins og ég fæ svo oft að heyra :) En nei nei. En það er samt bót í máli að fatlaður einstaklingur á Höfn gæti með góðu móti stundað nám við HÍ. Ég komst að því. Þegar ég hef lokið við prófið og hef eldað eitthvað fyrir manninn minn þá væri nú ekki vitlaust að athuga hvort vinir okkar Jóhanna og Ásgeir séu komin heim með prinsessuna og ef svo er þá væri nú þess virði að hætta sér í Suðursveitina til að líta á gripinn. Allt stefnir í það að Dóra greiið verði að þola mig í ansi marga daga í októbermánuði þar sem ég reikna með því að þurfa að vera mikið í bænum þá. Ég þarf líka að fara í bæinn 26.sept svo ef það er einhver sem á leið héðan og þangað þá má láta mig vita. Annars verð ég bara að fara í einu svona röri sem er alltaf að fljúga yfir húsið mitt. Í gær komu tvær vélar, það er yfirleitt svoleiðis en það var víst eitthvað óvíst hvort tækist að fljúga hingað seinna flugið í gær, ekki vegna veðurs! nei nei vegna skorts á starfsfólki. En það er greinilegt að fundist hefur flugmaður eða sjálfstýringin sett á því velin kom. En nú er ég bara farin að bulla eitthvað svo ég ætla að hætta. Nenni ekki að lesa þetta yfir svo ef það eru villur....úbbbs

 


30-Aug-2006 14:14 Hugrún Harpa

Hér er sólin og við Sesar erum búin að njóta þess að vera úti. Við munum keyra til suðurs í kvöld og er næsta víst að sólin kemur ekki með okkur frekar en fyrri daginn. Það er þó með sól í hjarta sem ég mun ganga inní bóksöluna og kaupa enn einu sinni kennslubækur á uppsprengdu verði. Sólin verður þó líklega sest þegar ég geng út með grátandi budduna. Ég er í því að blikka kennarana og ganga frá mínum málum þannig að ég skilji þau sjálf;) Mér til skemmtunar hlusta ég á Kim Larsen. Já gott fólk það er mikið stuð hjá mér. Mikið eruð þið óheppin að geta ekki deilt því með mér.


29-Aug-2006 15:54 Hugrún Harpa

Komin heim í fjörðinn fagra. Jább við erum komin heim frá Danmörku og skemmtu okkur alveg ljómandi vel þar:) Fórum í hestvagn, Legoland, og verslunarleiðangur svo eitthvað sé nefnt. Það var nú samt ekki mikið verslað. Það var ljúft að koma aftur heim í húsið okkar og fá íslenskan mat og geta eldað sér fiskibollur og svona :) Við tókum mikið af myndum og ætli við setjum ekki brot af þeim hér inn. Einnig eigum við nú eftir að gera upp sumarið í myndum. Veit að fólk er að bíða eftir að sjá einhverjar myndir. Halli minn þær eru alveg að koma. Bóndinn er bara alltaf svo upptekinn og ég kann ekkert á þetta. Annars er nú ekki mikið að frétta af okkur. Skólinn að byrja á föstudaginn og byrjar þá fjörið.hef ekkert meira að segja;) Hafið það gott, það ætla ég að gera.


22-Aug-2006 19:52 Hugrún Harpa og Trausti ferðalangar :)

Nú höfum við lagt land undir fót og erum stödd í Danmörku þegar þessi orð eru rituð. Nánar tiltekið rétt fyrir utan Billund þar sem við gistum. Við héldum af stað í sumarfríið úr firðinum fagra að morgni föstudagsins 18. ágúst. Hann elsku Sesar okkar var skilinn eftir hjá ömmu sinni og afa á Hlíðarbergi. Af þeim sex árum sem við höfum átt hann þá er þetta í fimmta sinn sem við skiljum hann eftir annars hefur hann alltaf komið með okkur allt svo við söknum hans mikið. En hann er í góðum og öruggum höndum. Það var nú ekki nóg með það að það væri erfitt að skilja hann eftir heldur voru hjónakornin ekki komin lengra en á Skeiðarársand þegar þau fóru að velta því fyrir sér hvað það yrði nú ljúft að koma heim aftur. Vitum ekki hvað við erum að reyna þetta. Það var komið við á Selfossi þar sem lubbinn var klipptur af frúnni sem hafði ekki farið í snyrtingu í allt sumar. Edda gerði nátturlega góða hluti við lubbann eins og alltaf:) Það var svo á laugardaginn sem við héldum af landi brott. Flugið gekk vel og fannst okkur mjög sérstakt að koma í allt þetta myrkur sem er hérna í Danmörku. Þegar við höfðum nálgast bílaleigubílinn sem er nýr og glæsilegur Golf fórum við beint í gistinguna og beint að sofa. Á sunnudagsmorguninn fórum við til Odense til Siggu og Stinna og fórum í æðislegan dýragarð, þar var margt að sjá. Til dæmis mörgæsir, skjaldbökur og feitustu gullfiska sem við höfum séð, svona svo eitthvað sé nefnt. Í gær fórum við svo til Egeskov þar sem ber að líta 452 ára gamlan kastala sem er fullur af allskonar dóti. Þessu hefur eigandinn safnað saman en hann þjáist af söfnunaráráttu. Við fórum svo í verslunarmiðstöð í Odense í gær en keyptum nú ekki mikið. Bóndinn eina peysu og belti og hann náði að sannfæra frú sína um að gallajakki færi henni svona ljómandi vel að hún lét undan :) Í dag keyrðum við svo frá Odense til Kolding og kíktum þar í annað moll en þar var ekkert keypt nema drull í krukku. Örugglega gott drull samt. Á leið okkar til Billund kíktum við á gamla verslun og brautarstöð sem kallast Bindeballe Kobmandsgard. Húsin þar eru byggð 1897. Skoðuðum Billund aðeins í dag og fengum okkur göngutúr og bíltúr hérna í nágrenninu. Sáum fullt af íslenskum hestum og líka ogguponkupínulitla hesta sem meira að segja Snæsa væri of stór á. Já þeir sjást varla. Á morgun ætlum við svo að fara til Ribe sem er elsti bær Danmerkur og þar er hægt að fara í hestvagn :) En nú ætlum við að fara að lúlla okkur því hér er klukkan hálf ellefu. Sesar okkar ef þú lest þetta þá söknum við þín rosalega mikið ;)

 


06-Aug-2006 15:48 Hugrún Harpa

Það er sunnudagur og verslunarmannahelgin er að verða búin. Við Sesar erum búin að vera ein heima alla helgina þar sem hann Trausti okkar er að smíða í sumarbústaðnum. En það hefur verið nóg að gera og veitti satt best að segja ekkert af því að einhver væri aðeins heima til að taka til og ráðast á þvottarkörfuna. Jamm þar hafið þið það. Verslunarmannahelgin hjá mér þetta árið var helguð þvottarkörfunni:) Í gær kíkti ég í heimsókn til Jóhönnu og Birnu á Smyrlabjörgum. Við Sesar fengum okkur göngutúr í Óslandinu í morgun í sólinni og núna er ég að baka alveg rosalega girnilega súkkulaðiköku svo ég eigi eitthvað að gefa bóndanum þegar hann kemur heim í kvöld. Við erum orðin mjög spennt fyrir Danmerkurferðinni okkar, bara tvær vikur í hana. Það verður ljúft að fá smá frí saman áður en haustið kemur með öllu sem því fylgir ;) En nú hef ég eiginlega ekkert meira að segja. Hafið það gott.

 


30-Jul-2006 8:20 Hugrún Harpa

Alltaf erum við jafn dugleg að skrifa eitthvað hér inn:) Það er bara svo mikið að gera sem er skemmtilegra en að sitja við tölvuna. Trausti er núna að mála RAUÐU forstofuhurðina hvíta og svo er stefnan að setja flísar á forstofuna í næstu viku. Þetta er allt að gerast. Við kölluðum út hjálparlið til að velja flísarnar og niðurstaða fékkst í málið og verður gaman að sjá útkomuna. Annars er ekki mikið að frétta. Ég hætti að vinna 18. ágúst og þá ætlum við hjónin að taka okkur smá frí saman. Ekki er alveg búið að ákveða hvað á að fara eða gera enda erum við ekki mikið fyrir það að ákveða hlutina með miklum fyrirvara. Skólinn byrjar hjá mér 1.sept og er nú ekki alveg laust við það að ég sé pínu spennt yfir því. Eitthvað verður flakk á okkur Trausta í haust en það bara fylgir þessu. Það verður bara gaman líka. En nú hef ég eiginlega bara ekkert meira að segja. Ætla að fara að gera eitthvað sniðugt. Við höfum ekkert sett inn af myndum í langan tíma en það verður ráðin bót á því eftir 18.ágúst:) Hafið það gott.

 


11-Jul-2006 21:45 Hugrún Harpa

Það er svona stutt síðan ég skrifaði hérna síðast :) Mikið rosalega sem ég er dugleg. Það er samt eiginlega ekki frá neinu að segja. Við áttum jú alveg æðislega helgi hér heima á hátíð á Höfn :) æðislegt að vera loksins heima þessa helgi. Fengum okkur auðvitað humarlokuna frægu, röltum um á bryggjunni, keyptum miða í kúadellulottóinu hjá Jógu en blessaður bolinn er eitthvað illa taminn og skeyt bara á röngum stað. Ég horfði stíft í augun á honum og reyndi að senda honum hugskeyti en allt kom fyrir ekki. Leikar enduðu með f-1 en ekki j-8 eins og ég hefði viljað. Við stigum nokkur létt spor á bryggjunni, Sindrabæ og íþróttahúsinu og allt var þetta rosalega gaman. Við erum svo síðan þá bara búin að vera að vinna. Ég fékk einhverja leiðinda flensu en er á batavegi núna. Tíminn flýgur hjá okkur eins og öllum og bara sex vikur eftir í vinnu þetta sumarið og þá tekur skólinn aftur við. Þó með aðeins öðru sniði en verið hefur:) Það verður bara gaman að takast á við það og ég hlakka til. Tíminn má alveg fljúga mín vegna :) Svo eru jólin bara alveg að koma og svona :) Annars er ekki mikið að frétta ;) Við erum alveg búin að sjá það að Höfn er staðurinn og okkur líður alveg rosalega vel. Góður andi í húsinu okkar og alveg pissandi hamingja hér á bæ. Það er svo gott að koma heim á kvöldin að þið bara trúið því ekki. En nú kveð ég að sinni og vonandi eru allir með bros á vör.

 


19-Jun-2006 21:53 Hugrún Harpa

Já sjómannadagurinn er búinn :) Það er svona frá hinu og þessu að segja en ætíð þegar ég ætla að fara að skrifa eitthvað hér þá man ég ekki nema brot af því. Helstu fréttirnar eru þær að Trausti var heima um helgina og voru það kærkomnir tímar fyrir okkur hjónin þar sem við höfum ekki getað verið mikið saman. Á laugardaginn (17 júní) fórum við í göngu sem endaði á hóteltúninu. Þar var gert stutt stans til að horfa smá á hátíðardagskránna en svo var bara farið heim að horfa á handboltaleikinn sem var alveg hreint ótrúlega spennandi:) Við grilluðum svo um kvöldið og mamma og pabbi komu í mat til okkar. Í gær var svo ákveðið að fara í göngutúr og varð Kolgrafardalur fyrir valinu. Við héldum til fjalla klukkan hálf tólf á hádegi og vorum komin aftur til byggða klukkan sjö um kvöldið. Þá höfðum við gengið 16 kílómetra. Svona erum við dugleg:) Þetta var alveg rosalega skemmtileg ganga á fallegum stað en við fundum líka alveg fyrir kílómetrunum í fótunum þegar við komum aftur í bílinn. Steini, Sigrún og Mjöll komu með okkur. Í dag tók svo vinnan við aftur og dagurinn leið ekki alveg án áfalla hjá mér þar sem hún Vitund okkar sá til þess að ég kyssti fósturjörðina og er rækilega hrufluð á nefinu eftir það. En nenni ekki að skrifa meira í bili. Erum búin að taka fullt af myndum síðan við komum heim og setjum kannski eitthvað af þeim hér inn. Kannski einhverjar líka af húsinu svona fyrir þá sem hafa ekki séð það. Og eru að deyja úr forvitni. Það er örugglega fullt af svoleiðis fólki að lesa þetta og skoða ;)

 


11-Jun-2006 9:06 Hugrún Harpa Grasekkja

Sjómannadagurinn!

Jamm í dag er sjómannadagurinn. Það rignir eins og hellt sé úr fötu núna svo líklega færist hátíðardagskráin af hóteltúninu yfir í íþróttahúsið. Trausti verður vonandi kominn heim þegar hún byrjar:) Hann er búinn að ver í Svínafelli um helgina að reysa sumarbústaðinn. Hann fór á fimmtudaginn í Svínafell og svo á föstudeginum til RVK að sækja einingarnar. Og svo var allt sett upp í gær. Ég er ekkert smá stollt af smiðnum mínum. Tengdapabbi var með honum og veit ég að það hefur verið ómetanlegur stuðningur. Maggi veit hvað ég er að meina;) Steini og Sigrún aumkuðu sig yfir grasekkjuna á Hólabrautinni og fékk ég að fara með þeim að horfa á koddaslaginn, kappróðurinn og flekahlaupið í gær. Þetta var mjög gaman allt saman. Afar skemmtilegt var að sjá þegar konur skipsmanna skoruðu á þá í kappróðrinum og unnu þá með stæl :) Við fórum svo í siglingu á Ásgrími Halldórs út fyrir Ósínn. Þegar þetta var nú allt afstaðið þá fór ég heim og bakaði skinkuhorn. Enn og aftur voru Steini og Sigrún svo góðhjörtuð að bjóða mér með í sumarbústaðinn í Lóni. Við fórum þangað og grilluðum góðan mat og spjölluðum. Guðný, Geiri og Pálmi Geir voru líka á staðnum og auðvitað Sesar og Mjöll. Við vorum komin heim hálf tólf í gærkveldi og þá var bara farið að sofa og nú er ég vöknuð og bíð eftir að bóndinn komi heim:) Ætti kannski að fara út á snúrur að sækja þvottinn. Hann var nú blautur þannig að það breytir engu þó það rigni í hann. Hann verður bara ferskari :) En hafið það bara gott öll sömul. Það ætla ég að gera:)bæ í bili.

 


06-Jun-2006 20:53 Hugrún Harpa

Þá kemur helgarfærslan. Foreldrar Trausta komu til okkar á föstudaginn síðasta að kíkja á húsið og hvernig við búum:) Við fórum í langann og góðan göngutúr við Papós. Í mjög stuttu máli þá var borðað og labbað til skiptis allan laugardaginn. Grilluðum alveg ljómandi gott kjöt um kvöldið. Þau héldu svo aftur suður á sunnudagsmorguninn. Við fórum og gerðum atlögu að fíflunum sem höfðu fest rætur sínar í trjábeðunum og erum bara rétt hálfnuð en náðum þó að fylla eina kerru af þessu drasli. Við fórum svo á hestamannamótið hjá Hornfirðing og horfðum á Frikka bróðir. Dóra kom svo til okkar og við áttum góðar stundir saman. Ég fór svo að vinna á mánudaginn og Trausti fór aðeins í Svínafell að vesenast í bústaðnum. Trausti kom svo við á Hlíðarbergi þegar hann var að koma heim og hjálpaði mér að taka nokkur hross. Efnilegur tamningamaður þar ;) Það gengur annars bara vel að temja hana Vitund okkar og við höfum alveg trölla trú á henni. En helgin var sem sagt góð og við fengum fullt af góðum gestum. Meira seinna.

 


02-Jun-2006 23:00 Hugrún Harpa

Ansi er nú orðið langt síðan það var eitthvað skrifað hér inn :) Við höfum bara verið svo voðalega upptekin eitthvað. Erum flutt heim og búin að koma okkur fyrir í nýja húsinu okkar. Við erum rosalega ánægð með húsið og okkur líður mjög vel hérna. Hvða er annað hægt þegar húsið er á svona góðum stað ;) Við erum bæði byrjuð að vinna. Ég á Hlíðarbergi og Trausti hjá Sveini gamla. Það gengur bara alveg ágætlega að temja. Ég er að deyja úr harðsperrum í öllum líkamanum. Ekki í miklu formi eftir veturinn. Hef ekki verið svona mikið úti lengi og maður finnur sko fyrir því. Finnst stundum eins og ég sé skorpin í framan og svona :) Ég náði öllu í skólanum og gekk bara satt best að segja alveg rosalega vel. En ég er að hugsa um að fara út núna og taka nokkrar myndir. Það er svo fallegt veður.

 


10-May-2006 12:47 Hugrún Harpa

Að vera stressuð, kvíðin, fegin og full tilhlökkunar skapar mjög sérstaka tilfinningu. Það verður svo gott þegar morgundagurinn rennur upp en samt verður það um leið alveg skelfilegt, að minnsta kosti til klukkan svona hálf sex en þá er síðasta prófið búið. Þá ætlum við stelpurnar að fara saman út að borða. Eða þegar allar verða búnar að fara heim og þvo af sér prófskítinn og kúppla sig úr þessum gír sem maður er búinn að vera í síðustu vikur. Hvernig er hann segiði....í einu orði sagt druslulegur!!! Náttfötin eru alveg að virka fram að hádegi og þá tekur við næsta drusluflík sem er til staðar. Hárið er bara eins og það er og maður er hvítari en allt hvítt í framan. Ég afþakkaði pent að fá gest í dag þar sem ég vil ekki að nokkur maður sjái mig svona :) Ég er bara ekki boðleg á meðal fólks. Vesalings Trausti að búa með mér þessa dagana:) En hann er búinn að vera svo duglegur að pakka niður að nú er ástandið þannig á heimilinu að aðeins eru í boði tveir diskar, tvö glös og svo framvegis. Það er ALLt fullt af kössum og allt í drasli. AHAAAA....ég er bara í stíl við allt annað í húsinu. Það má því kannski segja að Trausti sé bara stílbrot! Þetta var nú alveg massa fín afsökun er það ekki ? En þetta er alveg að verða búið. Ég er hins vegar alveg rosalega svartsýn fyrir prófið á morgun og það verður sko hrópað húrra ef það fer svo vel að ég þarf ekki að mæta í próf í ágúst. Ég var ekki búin að segja ykkur það að Trausti er búinn að finna nafn á barnið hjá Jóhönnu og Ásgeiri vinum okkar :) Eða ef það verður drengur þá er hans tillaga að drengurinn skuli heita " Gústaf Berg " Þið sem þekkið Jóhönnu og vitið hvernig hún hefur haft það fyrstu daga...vikur...mánuði meðgöngunnar skiljið þetta vel. Fyrir ykkur hin þá get ég aðeins sagt að Jóhanna og postulínið voru ansi náin um tíma :) Ásgeir tók vel í þessa hugmynd en held að Jóhanna hafi ekki verið eins hrifin. Að gamni þá fletti ég því upp í þjóðskránni og það eru nú til tveir menn sem bera þetta fagra nafn :) En segir maður ekki að maður sé að fara til Gústafs Bergs :) Þetta er svona eins og að fara til Egils Daða :) En ég ætla að ljúka þessu með þessu bulli mínu og fara aftur að læra.

 


08-May-2006 7:56 Hugrún Harpa

Já gott fólk þá er kominn mánudagur....og próf á fimmtudaginn....það verður eitthvað skrautlegt er ég hrædd um. Þar sem bóndinn átti afmæli á laugardaginn þá tók ég mér frí frá bókunum. Það var rosalega gott veður og var nátturlega ekki hægt annað en að gefa Trausta karlinum ís. Við fórum svo í göngutúr í blíðunni og grilluðum andabringur um kvöldi. Dóra, Solla og Júlí komu svo í heimsókn. Gaman að fá þær eins og alltaf:) Við sóttum svo allt dótið okkar sem var í geymslu í skúrnum hjá tengdó og komum með það hingað heim. Eigum bara eftir að sækja svefnsófann:) Veit ekki hvernig við flytjum hann;) Ætli við verðum ekki bara að rölta með hann eftir Bæjarbrautinni. En þegar hann er kominn þá erum við búin að safna öllu dótinu okkar saman. Merkilegt hvað maður á mikið af dóti og það verður fróðlegt og gaman að taka upp og sjá hvað maður á. En nú verð ég að fara að lesa aðferðafræðina. það gengur ekki vel! En ég verð að reyna. Hafið það gott og ef þið eruð úti að leika ykkur í VONDA veðrinu þá bara góða skemmtun.

 


05-May-2006 7:57 Hugrún Harpa

Þá er bara eitt próf eftir og tíu dagar í heimferð:) Trausti á afmæli á morgun og ég veit ekkert hvað ég á að gefa honum í afmælisgjöf. Ég var að hugsa þetta í allan gærdag en ég er bara engu nær.

Við erum búin að finna okkur sófa:) Fengum þennan fína leðurhornsófa hjá góðri konu í Hafnarfirðinum. Kostar ekki nema 15.þúsund. Vel sloppið það.

Einstaklega lítið gerist þessa dagana annað en bókalestur svo það er nú ekki frá miklu að segja. Eins og allir vita þá erum við einstaklega spennt fyrir því að komast heim. Grafa upp hestadótið og smíðagallann.

Trausti hættir að vinna á fimmtudaginn svo gott fólk nú fer hver að verða síðastur að fara að versla eitthvað af honum:)

En nú ætla ég að fara að læra fyrir aðferðafræðiprófið sem er eftir viku....eða fimmtudaginn 11.mai. Veitir ekki af því að lesa vel því þetta verður pottþétt erfiðasta prófið til þessa. Hafið það gott.

 


02-May-2006 7:51 Hugrún Harpa

Merkilegt hvað lífið getur breyst. Það er svo ótrúlega margt sem maður hefur ekki hugmynd um þegar maður leggur af stað. Og eitthvað gerist sem manni hefði einu sinni aldrei dottið í hug að gæti gerst. Við pökkuðum dóti niður í kassa á Selfossi og á hann var skrifað "opna eftir 3 ár". Það var alveg pottþétt þá en þessi kassi verður opnaður eftir tvær vikur og ég hlakka pínu til því ég man ekkert hvað er í honum :) Maður gerir sér hugmyndir um það hvernig hlutirnir verða en svo verður það ekkert svoleiðis. Í dag hugsa ég hvernig ætli það verði að keyra LOKSINS heim, þegar ég verð svo að keyra heim þá hugsa ég til baka til þess dags sem ég hugsaði þetta. Í dag finnst mér svo langt í síðasta prófið! Þegar ég geng út úr prófinu á ég pottþétt eftir að hugsa, vá þetta er bara búið! Mér fannst svo mikið að fara í 3 ár í skóla en nú er fyrsta árið bara búið og mér finnst ég ný byrjuð! En nú ætla ég að hætta þessu bulli og fara að lesa fyrir próf. Hafið það gott :) Sleppum því bara að plana framtíðina, hún kemur bara alveg sama hvernig okkar plön eru.

 


30-Apr-2006 10:33 Hugrún Harpa

Garðar Thor Cortes er snillingur. Trausti var svo góður að bjóða mér á tónleikana hans sem voru í Laugardalgshöllinni í gær og ég hef bara aldrei upplifað annað eins. þetta toppaði allt. Veit eiginlega ekki hvernig ég á að útskýra hvernig mér leið. Það eru ekki til nein orð yfir það. Fólk grét í salnum og klappaði og stappaði fótum af fögnuði! Andrúmsloftið var ótrúlegt og hann heillaði greinilega alla. Nú sit ég svo við eldhúsborðið heima og hlusta á Cortes eins og alltaf þegar ég er að læra fyrir próf. Sjúkdómsvæðingin er næst núna á fimmtudaginn svo það er eins gott að nýta tímann vel. vildi bara deila ánægju minni með ykkur. Hafið það gott.

 


26-Apr-2006 19:31 Hugrún Harpa

Klikkað að gera í að læra fyrir próf þessa dagana! Hef aldrei lært svona mikið í einu rikk eins og núna. Er líka eins og alltaf skíthrædd við að falla. Fer í próf á laugardaginn í efnahagslífinu, það er ekki mitt sterka fag. Hagvöxtur....velferðarríkið...þekkingarhagkerfið....blandaða hagkerfið, HAhhh ekki eitthvað sem ég hef beint hugsað útí. En eftir próf bíður mín skemmtilegur dagur :) Er svo heppin að vera í prófi á laugardaginn því þá getur Trausti skutlað mér, prófið er nefnilega í KR heimilinu og Trausti sat nú á strætóskýlinu fyrir utan völlinn og horfði á leiki þegar hann var lítill svo hann ætti að rata þangað :) Alveg merkilegt að prófin eru alltaf í einhverju húsi sem maður veit ekkert um og hefur aldrei komið í, ekki eins og það sé ekki nóg stress að vera að fara í próf heldur þarf maður að hafa áhyggjur af því líka að finna prófstaðinn! Kvittið svo eða kommentið eða gerið eitthvað, þarf ég að gera allt hérna eða?!?!?!?!???


 

23-Apr-2006 19:28 Hugrún Harpa

Gott fólk:)

Við erum að leita okkur að hornsófa gefins eða ódýrt í nýja húsið okkar :) Endilega hafið okkur í huga.

 


22-Apr-2006 18:45 Hugrún Harpa

Ekki veit ég af hverju ég er að reyna að skrifa eitthvað hérna inn! Gleðilegt sumar gott fólk. Samkvæmt mínum draumum verður kalt næstu fjóra daga....Það er margt merkilegt í mínum draumum. Fullt af hrossaskít, laxar sem vilja svo ólmir vera veiddir að það þarf ekki einu sinni að draga þá að landi, nei nei þeir bara stökkva í land. Eggjarauður og fullt af hrossum. Hross sem er löngu búið að selja og ég man ekki nöfnin á þeim nema í draumnum. Ef einhver getur til dæmis sagt mér hvað stóra blesótta merin sem var undan sömu meri og Þraslaug heitir þá væri það vel þegið...ég vissi það í draumnum en það er greinilega þarna langt niðri :)

 


19-Apr-2006 16:12 Hugrún Harpa

Þá erum við komin suður aftur, komum í gær vegna þess að Trausta var í fríi og ég þurfti ekki að mæta í skólann fyrr en í dag. Trausti var svo með einhverja skíta pest þegar við vöknuðum í morgun. Páskarnir voru góðir. Ég fór á hestbak sem var mjög ljúft. Ég fór á trampolín ásamt Snæsu, Steina og Sigrúnu. Trausti stóð til hliðar og tók myndir af okkur vitleysingjunum. Hann vill endilega fá að setja þær á netið en ég er að reyna að sannfæra hann um að gera það ekki. Ekki mín vegna heldur frekar fyrir hönd vinkvenna minna sem voru í pilsi ;) Litli kubbur eins og hann var kallaður var skírður og heitir hann því fallega nafni Guðmundur Reynir. Systkini hans Kristján og Selma sögðu nafnið saman :) En nú er næst á dagskrá að klára að pakka niður og læra fyrir próf svo ég ætla að hætta þessu í bili.

 


10-Apr-2006 19:36 Hugrún Harpa

Þá er komið páska"frí" :) Það eru aðeins tvær kennslustundir eftir hjá mér í skólanum og svo próf. Jesús góður Guð hvað ég kvíði fyrir þeim. En svo verður svo gaman að vera búin með þau. Frikki og Snæsa voru að kaupa sér þennan fína jeppa um daginn og skutlaðist ég með hann austur á föstudaginn og kom aftur til baka á laugardeginum. Við Trausti pökkuðum niður smá dóti og ég fór með það austur. Það er því orðið pínu tómlegt hjá okkur en það er nú ekki langt eftir hér fyrir sunnan :) Annars er bara ekki neitt að frétta. Gerum ekkert annað en að vinna og vera í skóla þessa dagana. Verður mikið fjör að komast heim á miðvikudaginn :)

 


06-Apr-2006 14:28 Hugrún Harpa

Eins og þið sjáið þá er alveg gríðarlegt líf á þessari síðu okkar. Við höfum varla undan að lesa gestabókina og kommentin. Ekki það að það sé eitthvað til að kommenta. Þið fáu sem hafið séð mig með svona reglulegu millibili eruð eflaust farin að velta því fyrir ykkur hvort ég er á lífi eða ekki......eða kannski ekki. í morgun skilaði ég ömurlegustu ritgerð sem ég hef á ævi minni gert. Veit ekki af hverju því þetta efni er virkilega eitthvað sem ég hef áhuga á en einhvern veginn komst það ekki til skila í verkinu. Kannski vegna þess að ég reyndi of mikið. Eða kannski bara vegna þess að ég skeit á mig.....getur verið. En henti henni í Helga og vona svo bara að hann verði blíður og góður eins og honum einum er lagið. Fyrirlesari dagsins í dag var finni sem heitir Miikka Pykkanen. Mér brá ansi mikið þegar ég sá hann því hann var ekkert í líkingu við þá finna sem ég hef séð. Hann var DÖKKHÆRÐUR og hann var EKKI ljótur. Ég er ekki að segja að hann hafi verið fallegur! Hann var bara venjulegur! Veit að maður á kannski ekkert að vera að segja svona en einhverra hluta vegna geri ég það samt....humm. Þeir finnar sem ég hef séð eru bara l.j.ó.t.i.r. Held samt að ég hafi ekki verið sú eina sem varð pínu hissa þegar hann gekk inn. En ætli það sé ekki svona staðalmynd líka af íslendingum. Eiga ekki allar stelpur hér að vera ljóshærðar? En nóg af finnanum. En þá veit ég líka ekkert hvað ég á að skrifa. Þetta er það eina áhugaverða sem hefur gerst í dag. Það var þessi finni. En nú verð ég að fara að lesa fyrir prófið í sjúkdómsvæðingunni. Ég er komin í páskafrí á mánudaginn og þá er mikil hætta á að ég slái hlutunum upp í kæruleysi svo það er best að vera dugleg núna.

 


03-Apr-2006 7:42 Hugrún Harpa

Þá er enn ein helgin búin og enn styttist í páskana :) Á föstudaginn fórum við til Steina og Sigrúnar Ingu að horfa á idolið, það var feikna gaman. Á laugardeginum var Trausti svo að smíða einingarnar hérna úti í garði á meðan ég var að rembast við að skrifa þessa ritgerð mína. Við fórum svo um kvöldið á ístöltið í skautahöllinni og það var æðislega gaman. Að vísu er ég komin með kvef núna þar sem við þurftum að standa úti í biðröð áður en húsið opnaði. Héldum að við værum að koma rosa snemma en nei nei það var bara komin röð út úr húsinu:) En það er alveg þess virði. Flott hross og góðar sýningar. Í gær komu svo Halli, Stefanía, Aron Máni og Marvin Logi til okkar. Strákarnir voru svo hjá okkur í smá stund í pössun. Gaman að fá þau í heimsókn. Það er enginn skóli hjá mér í dag þar sem hann Stefán er eitthvað slappur, karl greyið. Það er greinilega einhver flensa að herja á kennarana því það var ekki heldur skóli hjá mér á föstudaginn. En það er nóg að lesa svo ég hef alveg nóg að gera. Á morgun fer ég svo yfir heiði til tannlæknis á Selfoss. Eflaust gæti ég fundið tannlækni hér í Reykjavík en tannlæknirinn minn á Selfossi er bara heimsins besti tannlæknir þannig að ég fer þangað. Sama þó ég verði komin á Höfn:)

 


29-Mar-2006 17:33 Hugrún Harpa

Leitin að kvöldmatnum.

Fór í Fjarðarkaup áðan og fékk þá allt í einu þá hugdettu að gefa Trausta slátur í kvöldmatinn. Það var bara til eitthvað ógirnilegt slátur þar svo ég græddi lítið á þeirri ferð því það var ekki heldur til Kristjáns soðiðbrauð, jamm ég er að tala um soðiðbrauðið sem við fengum alltaf hjá ömmu á Akureyri. Þorði varla að opinbera það, en já já það fæst í Fjarðarkaup svo nú verðum við bara að slást um pakkana ;) En ég snéri mér að afgreiðsludömu og spurði hana hvort Kristjáns soðiðbrauðið væri alveg búið, hvort það væri ekki til neitt á bakvið. Hún setti þá upp þennan líka rosa sorgarsvip og fór að tala um að hann Kristján hann væri bara orðinn svo heilsutæpur að hann væri bara hættur að gera soðiðbrauð. Ég var nátturlega eitt ? og skildi ekkert í því að hann Stjáni sem var greinilega sameiginlegur vinur okkar kvenna gæti gert allt nema soðiðbrauð. Henni þótti því frekar vandræðalegt þegar ég sagði að ég væri sko að tala um soðiðbrauðið frá Kristjáni í Kristjánsbakarí, hún búin að romsa út úr sér öllu um hann Kristján gamla og allt hans ástand. En eftir þetta spjall okkar þá hófst leitin að slátrinu. Ég fór í Hagkaup, ég fór í 11-11, ég fór í Krónuna og það var ekki fyrr en ég fór í Nettó í Mjódd að ég fékk slátur og þar sem þetta hafði gengið svo illa keypti ég bara NÓG!!!! Ég ætla sko bara að biðja mömmu um að hjálpa mér að gera slátur í haust fyrst það er ekki hægt að treysta á að þetta fáist í búðunum.

En svona fyrir utan þetta þá er það að frétta að ég er búin að skila heimaprófinu í geðheilsunni og þarf því aldrei aftur að mæta í tíma þar :) Eitt fag búið af fjórum, þetta er allt að koma.

Gleymdi að skrifa það í gær að við fengum okkur bíltúr að Selatanga á sunnudaginn og það var alveg jafn fallegt þar og síðast :) Rosalega gaman að taka myndir af briminu þar og náðum við nokkrum fínum.

 


28-Mar-2006 9:36 Hugrún Harpa

Já já við erum ekki búin að vera að skrifa neitt. Það hefur bara ekki verið mikið til að segja og ég var bara að klára heimaprófið í geðheilsunni og hef ekki gert neitt annað síðustu vikuna en að vinna í því. Eina sem er að frétta er að það eru 48 dagar þangað til við flytjum og það er bara þessi vika, næsta og svo hálf vika þangað til við förum í páskafrí heim. Það verður sko ekki lítið fjör þar sem fjölskyldan verður öll saman, það hefur ekki gerst síðan í brúðkaupinu hjá Halla og Stefaníu. Þetta verða sko FRÁBÆRIR páskar :) Við fórum á Selfoss um daginn í heimsókn til Dóru og Co og við komumst að því á leiðinni að tvöföld lína þýðir að taka framúr á tvöföldum hraða....eða svona miðað við hvernig fólk var að keyra þá vorum við farin að halda það. Heil lína og brotalína hlýtur þá að þýða að taka megi framúr á einum og hálfum hraða. En ég hef eiginlega ekki neitt meira að segja. Ég er alveg búin eftir heimaprófið og er því að hugsa um að dunda mér bara við það að sauma dúkinn undir jólatréð, ég keypti hann fyrir jólin 2004 svo það er kannski um að gera að fara að klára hann. Hann á að fara undir jólatréð á Hólabrautinni og því er ég búin að draga hann fram núna. Eitt að lokum. Til hamingju með afmælið mamma:)

 


14-Mar-2006 20:02 Hugrún Harpa og Trausti.

Ég hafði á orði við Trausta að nú ættum við að skrifa eitthvað sniðugt inn á síðuna okkar. Á móti fékk ég "hvað á ég að skrifa". Ég spurði í sakleysi mínu hvort það hefði ekki eitthvað merkilegt gerst hjá honum en hann kvaðst ekki hafa neitt að segja annað en einhverjar grátsögur úr vinnunni sinni sem er víst orðin eitthvað frekar einhæf og döpur. Eitthvað er lítið um kúnna sem er í sjálfu sér ágætt því það er víst heldur ekki mikið um vörur til að selja! Þeir sem hringja fá víst að heyra fátt annað en nei ÞVÍ MIÐUR það er bara ekki til, nei ekki það heldur...nebb var að klárast ( right ;) ég meina hvað á maður að segja, maður verður nú að hafa einhverja fjölbreytni í því HVERNIG maður segir það er ekki til :) Svo er nýjasta brellan hjá þeim að láta símakerfið hrynja og þá heyrir kúnninn ekki neitt í þeim og veit þar af leiðandi ekki að það er ekki neitt til:) En í staðinn verða kúnnarnir alveg brjálaðir og hringja aftur þegar þeir neiðast til að setja símann í samband og þá skammast þeir ekki bara yfir því að hlutirnir séu ekki til heldur geta þeir líka haldið góða ræðu um það hvað það sé nú léleg þjónusta að það skuli ekki vera hægt að ná inn og þegar þeir loksins ná inn þá er sambandið svo lélegt að ekki heyrist í sölumanninum ;) Svona er mikið stuð í vinnunni hjá Trausta. En þetta er nú samt hið besta fyrirtæki. En líklega verður það þó mikil gleði hjá Trausta að komast aftur til Sveins Sighvats. Og hér líkur grátsögunni.

 


13-Mar-2006 9:08 Hugrún Harpa

Þá er enn einn mánudagurinn kominn. Við Trausti fórum heim í Hornafjörðinn á fimmtudaginn eftir vinnu. Eins og alltaf var mjög gaman að koma heim en þessi ferð var sérstök því nú eigum við orðið hús á Höfn:) Loksins er það orðið alveg 120% öruggt og við getum hrópað húrra:) Trausti fór svo með rútunni í Svínafell á föstudeginum og ég var svo heima hjá mömmu og pabba um helgina. Mamma var svo góð að baka handa mér rúllutertu og ostahorn á afmælisdaginn:)Nammi namm:) Trausti öfundaði mig mikið af öllum þeim kræsingum sem ég fékk hjá mömmu og pabba. Ég fékk kökurnar, skyr, buff og svo nátturlega andabringur sem voru alveg æðislega góðar. Alltaf gott að borða hjá mömmu og pabba :) Svo kemur maður alltaf kílói þyngri heim og vikan fer í að losa sig við það aftur en það er þess virði :) En nú verð ég að fara að koma mér af stað í skólann. Er að fara í afar mikilvægan tíma hjá Stefáni Ólafs. Hafið það gott.

 


08-Mar-2006 15:40 Hugrún Harpa

Ef það er einhver hópur samfélagsins sem ég bara hreinlega þoli EKKI þá er það strætóbílstjórar. Þetta eru stórhættuleg kvikindi. Var á leiðinni heim úr skólanum áðan og var í þéttri röð bíla....AKKURAT þegar ég og annar bíll sem var fyrir framan mig erum hliðina strætó sem er stopp þá lætur hann sig flakka út á götuna!!!!!!!! Ég gat ekkert gert nema bremsa og vona að ég myndi ekki enda á hinum bílnum....og hlusta á naglana þurkast úr dekkjunum!!! Þetta slapp allt sem betur fer en ég hefði ekki mátt fara cm lengra. Þið viljið ekki vita allt það ljóta sem ég hugsaði um hel...strætókarlinn. Langaði til að fara og leggja hendur svona þétt um háls hans og svo bara AÐEINS þéttar!!!....OHHH ég var svo reið. Ég meina fær maður vinnu hjá strætó ef maður er nógu andskoti mikið fífl eða! Svo finnst mér nú alveg merkilegur fjandi að þeir skuli ekki hugsa aðeins eftir þau hörmulegu slys sem strætó hefur lent í. Hvað er að þeim! Svo er hann nátturlega alveg búinn að eyðileggja daginn því ég var í svo miklu stuði til að fara að læra en nú er ég of geðvond til þess. Þetta er samt kannski efni í BA verkefnið mitt. Að skoða hvort strætóbílstjórar eigi við félagsleg vandamál sem gætu orsakað heimsku þeirra.

Ég var í tíma í geðheilsunni og geðheilsa mín er mjög tæp eftir þetta atvik. Kannski er það bara vegna þess að ég er kona...var að læra þetta í dag að konur eru mun líklegri til að leita hjálpar vegna geðrænna vandamála en karlmenn. Flestir vildu meina að það væri vegna þess að þær væru svo opnar en karlarnir svo lokaðir...ok, það er kannski alveg satt. En svo kom ein af samnemendum mínum með langa romsu um það hvað það væru gerðar miklar kröfur á konur í dag og þær þyrftu að gera svo mikið og álagið væri svo mikið...og meira og meira sem snerist allt um það að konur eiga svo bágt. Eftir að vera búin að hlusta á þetta í nokkurn tíma gat ég bara ekki þagað lengur og varpaði fram þeirri spurningu hvort það væri kannski ekki bara málið að konur væru bara pínu aumingjar og það væri búið að telja konum trú um það að þær ættu svo bágt og að karlarnir fengju alltaf meira en við en þyrftu ekki að gera neitt til þess annað en að vera með typpi. Ég meina þeir vinna oftast mun lengur en konurnar en samt eiga þeir líka að vaska upp, ryksuga, sinna okkur, rækta hjónabandið með okkur og sinna börnunum. Þeir eiga að vera harði maðurinn en líka mjúki maðurinn bara svona þegar við viljum....ég meina þetta HLÝTUR að vera álag líka! Við konurnar erum bara gjarnari á að vorkenna okkur! Ég er alveg sannfærð um að sú staðreynd að ég á 3 bræður hefur eitthvað að gera með þessa skoðun mína og takk fyrir það strákar:)Fegin að vera ekki ein af þeim sem eru alltaf að gráta yfir því hvað konur fá lítið:) En nú ætla ég að fara og sækja manninn minn sem er fyrr búinn að vinna en flestir aðrir menn og láta hann ryksuga ;) hehe...eða ekki. Ætlum að fara út að labba með hann Sesar okkar :) Hafið það gott og passið ykkur á strætó.

 


07-Mar-2006 16:58 Hugrún Harpa

7.mars...... í dag eru sjö ár síðan ég hitti Trausta í fyrsta sinn (svona eitthvað að ráði )og krækti í kappann :) Eða hann í mig eða bara hvernig sem þið viljið hafa það. Mér finnst svo stutt síðan en samt er það svo langt þegar maður hugsar SJÖ ÁR! Ohhh hvað ég er heppin :) Eitthvað er nú lítið að frétta af okkur. Dagurinn hjá mér hefur farið í það að lesa um alcoholisma og aðferðafræði og ég hef satt best að segja ekki mikið um það að segja. Síðasta helgi hjá okkur var æðislega fín. Við fórum á bókamarkað í Perlunni og kíktum líka á hundasýninguna. Steini og Sigrún komu í vöfflukaffi til okkar á sunnudeginum og borðuðu allir á sig gat af vöfflunum hans Trausta. En nú verð ég að halda áfram að lesa aðferðafræðina svo ég viti eitthvað í minn haus í tímanum á morgun.

 


03-Mar-2006 1:02 Hugrún Harpa

Jæja nú hef ég ekkert betra að gera, best að skrifa eitthvað hér inn. Trausti er búinn að setja mig í útgöngubann og verkefni dagsins hjá mér er að losna við flensuna :) Ég er búin að sofa eins lengi og ég mögulega get og ég er búin að prófa alla leikina á leikjanet.is. Ég er líka búin að skoða heimasíður allra sem ég þekki og það er nú ekki lítið sem fólk er að bregðast manni á þessum erfiðu tímum!!!!Það er bara ekkert nýtt að lesa! Nenni ekki að lesa um þetta hel.... álver sem á að koma hjá Húsavík, ég verð bara svo fúl eitthvað!!! Kannski ég ætti bara að fara í gegnum allar vídeóspólurnar næst og sjá hvort það sé ekki eitthvað skemmtilegt þar, get í það minnsta horft einu sinni enn á LOVE ACTUALLY...held það sé skrifað svona, ef ekki þá verðið þið bara að fyrirgefa því ég nenni ekki að standa upp til að gá að því. NEI nú veit ég...hringi í Snæsu, það er alltaf gaman:)BÆÆÆÆÆ......

 


02-Mar-2006 8:29 Hugrún Harpa

Punktar frá síðustu dögum.

Hamingjan er ferðalag ekki áfangastaður.

Félagsfræði er bara hamingja...eða svona næstum því :) Lærði það í gær að karlmenn EIGA ekki að vera daprir og taugaveiklaðir....neibb það er sko hlutverk kvennanna!!! suss suss...alveg merkilegt hvernig samfélagið virkar.

próftaflan er komin og ég er í búin í prófum 11.mai. Mjög sátt með það. Hins vegar er alveg skelfilega stutt í þetta allt saman og tíminn flýgur frá manni. En svona er þetta, vorið kemur með öllu sem því fylgir og þar á meðal eru víst prófin. En þegar þau eru búin þá verður sko gaman:)

Ég er búin að vera á hlaupum á milli Elko og Beko með myndavélina okkar síðustu daga. Sumir vilja meina að það hljóti eitthvað að vera að vélinni sjálfri en aðrir vilja meina að við séum bara svona rosalega óheppin með kortin! En það er líka vegna þess að aðrir þurfa að dæla í okkur dýrum kortum á meðan ekkert finnst að vélinni en hinir þurfa að gera við hana á sinn kostnað. En nú er hún komin heim þessi elska með enn eitt nýja kortið og við getum farið að taka myndir aftur.

Ég er búin að vera með flensu síðustu daga, á hverju kvöldi er ég alveg viss um að ég hljóti að ná að sofa hana úr mér en vitir menn það er ekkert að gerast. En það er ekki meira í bili. verð að fara í skólann.

 


21-Feb-2006 10:45 Hugrún Harpa

Það eru komnar inn nýjar myndir.


20-Feb-2006 19:13 Hugrún Harpa og Trausti

Jæja gott fólk.

Við hjónin gerðum góða ferð heim í Hornafjörðinn um helgina:) Kíktum á nýjasta fjölskyldumeðliminn sem var alveg með eindæmum rólegur en samt svo gaman af honum. Fórum út á Höfn að brasa eitthvað. Fengum slátur og lambalæri hjá mömmu og pabba. Það var frábært veður, hvað getur maður beðið um meira. Það var aðeins einn galli á ferðinni og það var að þurfa að fara svona snemma til RVK aftur! Við tókum mikið af fallegum myndum heima og þær koma vonandi hér inn á morgun. Trausti var svo veikur heima í dag með hita og fleira. Annars erum við bara kát með lífið þessa dagana:)vonandi gildir það sama um ykkur öll.

 


14-Feb-2006 10:15 Hugrún Harpa

Valentínusardagurinn.

Og öll blöð full af auglýsingum, allir að auglýsa einhverja svaka fína pakka til að gefa elskunni sinni. En fyrir mér er þetta bara þriðjudagur! Aðferðafræðin á hug minn allann.... eða kannski ekki en ég er að reyna:) Það er bara svo merkilegt að þó bókin sé svona girnileg að utan þá er hún bara ekkert spes að innan. Þannig eru reyndar flestar mínar skólabækur. En þetta verður bara stutt í dag. Verið góð við elskurnar ykkar því það er þriðjudagur.


13-Feb-2006 10:28 Hugrún Harpa

Þá er kominn mánudagur aftur og ég á leiðinni í tíma í Efnahagslífi hjá honum Stefáni karlinum. Trausti kom heim á föstudaginn:) Og byrjaði svo í nýju vinnunni í dag, hann var svona pínu tens þegar ég keyrði hann í morgun. Það er helst í fréttum að ég var að eignast alveg æðislega fallegan frænda þann 10.feb. Nú á ég sko 4 fallega frændur:) Og svo nátturlega eina frænku sem er prinsessan ;)Ekkert smá rík maður! En við gerðum ekki mikið um helgina, ég bauð Trausta út að borða á föstudaginn. Dóra var svo hjá okkur á laugardaginn og við keyrðum hana á Selfoss í gær. Tókum í spil með henni, Sollu og steinu. Gunnar bættist svo í hópinn ferskur að vanda, svona eru Klausturbúar ;) Við erum að vonast til þess að komast heim um næstu helgi og vonum því bara að veðrið haldist svona fínt. En nú verð ég að koma mér af stað í skólann. Heyrumst og munið að kvitta fyrir komuna, fæ að heyra frá hinum og þessum "já ég las það einmitt á síðunni ykkar" en enginn skilur eftir spor!!!!! Skammist ykkar.


08-Feb-2006 10:43 Hugrún Harpa

Ég veit nú ekkert hvað ég á að skrifa hér inn. Það er svo nákvæmlega ekkert að gerast þessa dagana. Við Sesar erum bara ein hérna í Garðabænum. Trausti er í Svínafelli. Ég er loksins búin með ritgerðina í geðheilsunni og nú er bara að sjá hvort hún fær góða dóma. Jóhanna kom til min í gær og bjargaði mér alveg frá því að drepast úr leiðindum:) En annað er ekki að frétta. Ætla að fara með Sesar upp í Heiðmörk áður en ég fer í skólann.


31-Jan-2006 17:47 Hugrún Harpa og Trausti

Mikið rosalega var gaman að horfa á leikinn Ísland Rússland :) Það var sko tekið hlé á skólabókalestri á meðan hann var í gangi. En það sem er helst að frétta héðan úr Garðabænum er að við skelltum okkur í göngutúr í morgun og hann Sesar er alveg farinn að læra reglurnar hérna í borginni og gott ef hann er ekki farinn að skilja þetta með rauðu og grænu karlana :) Í göngutúrnum sáum við svo 5 tjalda sem voru að hnipra sig saman hérna í fjörunni fyrir neðan Hafnafjarðarveg. Við gátum nú ekki annað en vorkennt þeim þar sem það var frekar kalt í morgun.Eitthvað er nú sennilega meira að frétta en þið sem vitið það ekki eigið greinilega þá bara ekkert að vita það ;)


28-Jan-2006 12:19 Hugrún Harpa.

Ansi er nú langt síðan við skrifuðum eitthvað síðast. Svona getur maður verið latur;) Við erum flutt af Kjalarnesinu og komin í Garðabæinn. Erum svona því sem næst búin að koma okkur fyrir. Við erum komin í reglulega góða þjálfun í að flytja svo þetta tók ekki langan tíma. Það hefur í raun ekkert gerst hjá okkur nema flutningarnir. Jú við fengum okkur göngutúr hérna í hverfinu þar sem við bárum moggann út í denn. "Mannstu eftir þessum tröppum??? Ég var alltaf að detta þarna!!! Mannstu eftir hundinum sem var þarna??? Þarna byrjuðu öll nöfnin á bjöllunni á H ;) Svona var þetta nú gaman og svona fáránlegum hlutum man maður eftir. Annars er bara skítaveður og verður líklega eitthvað lítið úr göngutúrnum sem við ætluðum í, í dag. Horfðum á leikinn í handboltanum í gær, hann var alveg rosalegur og við bæði með hjartslátt af æsingi :) En hef ekkert meira að segja í bili. Hafið það gott.


20-Jan-2006 17:56 Hugrún Harpa og Trausti

Jæja gott fólk. Þá er loksins komið að því! Við erum að flytja af Kjalarnesinu. Loksins! Flutningar munu standa yfir um helgina og við verðum því ekki í netsambandi um tíma. En við komum aftur. Við erum bara að pakka niður núna og ekki er það nú mikið sem þarf að pakka þar sem að flest allt er enn í kössum síðan við fluttum frá Selfossi og svo er eitthvað komið austur til mömmu og pabba :) En hafið það bara gott ;)


13-Jan-2006 11:15 Hugrún Harpa

Í annað sinn á ævi minn byrjaði ég föstudaginn 13. á að fara í leikfimi en núna kom ég heil út og endaði ekki á heilsugæslunni eins og síðast. Mér fer fram.Það hefur nú í raun ekki mikið gerst þessa vikuna annað en leikfimitímar. Það er alveg hellings snjór hérna hjá okkur svo það er alveg spurning ef hann fer ekki alveg strax að skella sér eitthvað út að renna sér:)En hef ekkert meira að segja í bili svo ég kveð bara að sinni.

bæbæ.


09-Jan-2006 21:10 Trausti

Við vorum að setja inn myndir frá áramótunum. Kíkið á þær:)

Bæbæ.


06-Jan-2006 13:11 Hugrún Harpa

Jæja gott fólk þá er ég komin suður aftur. Búin að taka niður allt jólaskrautið og það var ekkert lítið sem íbúðin stækkaði þegar Þetta fallega jólatré okkar fór í kassann aftur. Þegar ég kom í gær var það mitt fyrsta verk að henda öllum þeim glósum sem ég vildi ekki eiga úr stjórnmálafræðinni :) Það var svooo ljúft og Trausti tók þátt í athöfninni. Ég er ekki búin að fá neinar fleiri einkunnir en er bara orðin nokkuð spennt að byrja á nýjum fögum og hitta stelpurnar aftur :) Það var eins og þið getið ímyndað ykkur alveg frábært að vera heima og alltaf jafn ömurlegt að fara. En svona er þetta og það bætti nú úr skák að ég fór með pabba suður svo þetta var mjög skemmtilegt ferðalag:)En annars er ekki mikið að frétta. Þangað til næst bæbæ.


05-Jan-2006 9:11 Trausti

Fékk þennan símahrekk sendan í gær, alveg svakalega fyndið. Kíktið á þetta.


04-Jan-2006 21:08 Trausti

Ég er búinn að setja inn vídeó af brennunni á Hlíðarbergi um áramótin. Endilega kíkið á það. Já og endilega að muna eftir að skrifa í gestabókina, þið eruð alltof löt við það. Þangað til næst bæbæ.


03-Jan-2006 18:19 Trausti

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla, gott fólk!

Mig langar að byrja á því að monta mig aðeins á henni Hugrúnu minni. Hún tók þátt í ljósmyndasamkeppni (fyrir þá sem ekki vita) á vefnum 847.is, sem er vefur um hesta og allt sem því tengist, og áttu myndirnar að vera af einhverju sem tengdist hestum og eins og við var að búast (að mér fannst) þá gerði hún sér lítið fyrir og rúllaði henni upp með 205 stiga mun. Nokkuð glæsilegt hjá henni finnst mér. Svo fékk hún að vita að hún náði stjórnamálafræðinni sem hún var alveg viss um að hafa fallið í. :-).

Við skelltum okkur austur um áramótin og það var rosalega gaman eins og alltaf. Fengum rjúpur í matinn á gamlársdag, vá hvað það var rosalega gott að fá rjúpur aftur, þær klikka aldrei. Svo var safnaðí brennu eins og vanalega og þetta varð heljarinnar brenna, þær stækka með hverju árinu. Við fögnuðum nýja árinu svo með sprengjum og tilheyrandi látum eins og vanalega. Það koma myndir inn fljótlega og svo var brennan tekin upp á vídeó og verður því smellt hér inn von bráðar. Hér fyrir neðan má sjá vinnings myndina!

Myndin sem vann!!!


20-Dec-2005 19:58 Hugrún Harpa

Halló gott fólk.

Nú er ég búin í prófum! Jamm við skulum ekkert ræða það hvernig þetta gekk allt saman. Ég er ansi þreytt eftir próflesturinn og var orðin alveg rugluð. Trausti hafði þó nokkrar áhyggjur af því að ég væri að missa vitið þegar hann kyssti mig bless á mánudagsmorguninn. Ég var í fastasvefni og rumska svo við það að hann kyssti mig á kinnina og sagðist vera að fara í vinnuna. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum og sagði alveg hlessa að ég væri ekki búin að sofa neitt, væri búin að vera að smala í alla nótt og hún Yrpa var svo helvíti erfið maður. Jamm svona er maður klikkaður. En á morgun er ferðinni heitið á Selfoss að brasa hitt og þetta. Svo er nú ekki seinna vænna en að frúin fari að gera jólaísinn, finna jólagjöfina fyrir bóndann og svona:) Það er búið að trassa allt. En það er þó ekki stór íbúð sem þarf að þrífa ;) En við viljum bara óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári :) Hlökkum til að hitta ykkur um áramótin mamma og pabbi:)Hugsum til ykkar á jólunum með söknuði.Hafið það gott öll saman.


17-Dec-2005 18:03 Trausti

Fengum í póstinum um daginn segul sem á stendur Geðorðin 10. Okkur fannst þetta svo sniðugt að við ákváðum að setja þetta hérna inn, bara hérna til hliðar.


07-Dec-2005 21:17 Trausti

Hugrún eldaði alveg rosalega góðan fiskrétt í kvöldmatinn og smellti ég inn uppskriftinni af honum á síðuna. Endilega prufið þetta!

Ég var að klára að lesa bók sem Hugrún gaf mér í gær og heitir Feygðarflan og er eftir Rúnar H. Vignisson. Mjög svo skondin saga um mann sem ætlar að fremja sjálfsmorð en það gengur svona upp og ofan hjá honum. Mæli eindregið með þessari bók.

Svo vil ég bara segja Áfram Atlantsolía!!!!! Sniðugur þessi dælu lykill hjá þeim, það finnst mér að minnsta kosti.

 


07-Dec-2005 8:12 Hugrún Harpa

Það eru komnar inn nýjar myndir. Bæði síðan í nóvember þegar við fórum heim á Hlíðarberg og líka frá Akureyri.


05-Dec-2005 10:31 Hugrún Harpa

Jamm þá er þessi helgi búin. Ég hef bara ekki átt eins æðislegar stundir í LANGAN tíma. Mér líður virkilega eins og ég hafi verið vakin af fallegum draumi. Bóndinn minn var svo æðislegur að bjóða mér í smá bíltúr á föstudaginn og ferðinni var heitið til Akureyrar. Akureyri tók á móti okkur með fallegum jólasnjó:) Fyrsta stopp var á nuddstofu og þar fékk ég slökunarnudd sem virkaði svo sannarlega. Svo fórum við í Jólahúsið og það var bara eins og að koma í ævintýraland. Þetta er nátturlega út í sveit, það var kominn myrkur og snjóaði, inni voru spiluð falleg jólalög. Getur það verið jólalegra? Best af öllu var að við vorum bara tvö þarna að skoða og tókum okkur sko góðan tíma í það. Var semsagt alveg ægilega rómantískt og gaman. Við fórum svo í íbúð trésmiðafélagsins í Furulundi, slökuðum vel á og hlustuðum á nýja diskinn með Garðari Cortes, þessi diskur er alger snilld. Við gerðum svona hitt og þetta á laugardeginu, fórum í kirkjugarðinn og kveiktum á kertum hjá ömmu og afa, fórum á Dalvík, skoðuðum í búðir og keyptum nokkrar jólagjafir. Við enduðum svo daginn á að fara út að borða og kíktum svo á Birnu og Sigga. Okkur langaði ekki vitund til að fara "heim" (suður). Hefðum alveg getað verið þarna miklu lengur. En Akureyri kvaddi okkur með fallega jólasnjónum sínum og í gær keyrðum við suður, stoppuðum í Borganesi hjá ömmu og fengum alveg rosalega góðar vöfflur og kakó hjá henni. Kíktum svo á Hvanneyringana og þar voru meiri kræsingar í boði :)Takk fyrir okkur. En núna er hversdagsleikinn tekinn við aftur og Trausti farinn í vinnuna og ég held áfram að læra undir próf.

Já gott fólk ég á heimsins besta eiginmann :)


02-Dec-2005 9:27 Hugrún Harpa.

Jesús hvað ég er með ömurlegan kennara.Sendi henni fyrirspurn og hún sagðist ekki getað svarað mér. Það væri ósanngjarnt gagnvart öðrum nemendum. Eina manneskjan sem hefur sagt þetta. Allir hinir kennararnir eru alveg tilbúnir til þess að hjálpa manni. Þetta er alveg ferleg bíbbbb...Ég ætla sko að vera bara eitthvað númer í prófunum því hún svaraði svo truntulega að ég er farin að halda að henni sé bara illa við mig!

En mamma er karlinn sem telur niður til jóla kominn í forstofuna? Leiðinlegt að hann er alltaf búinn að telja niður þegar ég kem um áramótin :)


01-Dec-2005 17:24 Hugrún Harpa

Já þá er rannsóknarskýrslan loksins búin. Og það ætla ég rétt að vona að við fáum eitthvað fyrir hana. það tók langan tíma að gera hana og þegar við vorum búnar var það svona hálf skrítið. Við vissum ekkert hvernig við áttum að vera og hvað við áttum af okkur að gera. Ég fór svo til bækla í dag og fékk út úr myndatökunni. Í stuttu máli þá er ég bækluð. En alveg merkilegt hvað það er hægt að rukka mann fyrir ekki neitt. Bara það að fara á stofuna til hans í dag og láta hann segja mér niðurstöðurnar kostaði 3000 kr. Í heildina er þetta búið að kosta okkur 25000!!!! Ég meina hvað er að???? Það er ekki furða að maður dragi það eins lengi og maður getur að fara til læknis. En ég hlakka bara alveg rosalega til helgarinnar:)


30-Nov-2005 23:11 Trausti

Eins og sjá má þá er síðan búin að fá smá andlitslyftingu og höfum við bætt inn myndbandi sem við tókum á Snæfellsnesi í september síðastliðnum. Einnig er ætlunin að setja inn uppskriftir á þeim réttum sem okkur finnst góðir og svo verða settar inn uppskriftirnar hennar ömmu á Akureyri við fyrsta tækifæri. :)

En úr einu yfir í annað. Eins og allir hafa tekið eftir þá eru jólabækurnar farnar að streyma inn í bókabúðir og mér finnst eins og það sé rosalega inn í dag að skrifa glæpasögu. Hvað er það sem að veldur því að fyrir þessi jól þurfa allir að fara út í svona skirf? Er þjóðfélagið orðið svona rosalega slæmt að rithöfundar hafa ekki um neitt annað að skrifa í dag? Og hvað varð um allar þessar ævisögur? Eru allir merkilegu gömul karlarnir dauðir? Nei, ég bara spyr!

Eins var ég að velta þessum verðhækkunum á bensíni og dísel fyrir mér. Um leið og færi gefst þá er búið að hækka en svo þegar blikur eru á lofti um að verðlækkun sé á næsta leiti þá er ekki hægt að breyta neinum verðum því að það eru til svo miklar byrgðir sem voru keyptar inn á hærra verði. Ég veit að þetta er orðin eldgömul klisja en ég get bara ekki hætt að hugsa um þetta helv.... rugl og það er enn þá verið að svindla á okkur þrátt fyrir að þeir hafi lent í þessari rannsókn og lofað öllu fögru!!!!!


29-Nov-2005 20:25 Hugrún Harpa

Já ég get nú deilt því með ykkur að í kvöld fór ég út að labba. Líklega hefur vindhraðinn verið um 20 metrar og eitthvað vel rúmlega það í hviðunum. Skiltin veifuðu okkur í rokinu og á köflum var frekar erfitt að standa í lappirnar. Ég var þó allan tímann meðvituð um flesta staura sem ég gekk fram hjá því það var vissara að geta haldið sér í eitthvað:) Annars er ekki mikið að frétta. Ég bíð bara alveg óhemju spennt eftir næstu helgi.ahhaaaa.....


26-Nov-2005 20:14 Hugrún Harpa

Mikið rosalega sem ég er búin að vera dugleg í dag! Ég er búin að vera að læra í 12 klukkutíma. Og ekki ætla ég nú að læra meira í dag :) Ákvað bara að vera aðeins dugleg í dag og þurfa þá kannski ekki að læra eins mikið á morgun. Þó verð ég nú eitthvað að gera meira á morgun en nú ætlum við Sesar bara að poppa og horfa á lögguskólann. Hafið það gott.


25-Nov-2005 20:48 Hugrún Harpa

Já þá er það komið á hreint, það er ekki í lagi með mig! Ég er ein heima og er að horfa á idolið ruglað. Ég á mér ekkert líf !!! En það er annars ekkert að frétta af okkur. Trausti er farinn austur og við Sesar erum bara ein í kotinu. Ég verð að læra alveg helling um helgina :( Það er orðið ansi erfitt núna að sitja meira yfir bókunum. Sérstaklega þegar maður er að drepast úr leiðindum og er pínu einmanna. Og þar sem að Trausti er fyrir austan þá koma myndirnar ekki inn fyrr en einhvern tíman eftir helgi. En ég hef ekkert meira að segja í bili svo ég ætla bara að hætta þessu og fara bara að sofa og sjá hvort mig dreymi ekki bara eitthvað skemmtilegt fyrst það er ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu. Er búin að gefast upp á því að horfa á idolið ruglað.


24-Nov-2005 8:54 Hugrún Harpa

Jæja gott fólk! Þá er komið að því....ég á að liggja í tvo tíma í dag og má EKKI hreyfa lappirnar! Hahhh...eins og ég geti það, þær eru bara alltaf á ferð og ég get ekkert að því gert að það er svoleiðis. Aumingja Fúsi Fús var að reyna að læra á borðinu á móti mér í fyrradag og það var svo mikill hamagangur á löppunum mínum að ég sparkaði í hleðslutækið hans og reif tölvuna úr sambandi og allt maður! Ég verð semsé að vera kyrr svo það sé hægt að taka mynd. OK ég get það alveg en ekki í tvo klukkutíma.Sei sei nei nei! En annars er nú ekki mikið að frétta. Við Jónína erum að reyna að gera eitthvað í rannsóknarskýrslunni okkar, mikið stress og vesen. Ég er búin að fá til baka ritgerðina sem ég hélt að væri mín lélegasta og fékk bara fína einkunn ;) Enda er ég líka núna alveg viss um að sú sem ég skilaði síðast sé þá alveg ömurleg :) En þar til næst......bæbæ


21-Nov-2005 14:49 Hugrún Harpa

Jamm þá erum við komin til baka frá Hornafirði. Fórum austur á föstudaginn og komum til baka í dag. Vorum svo þreytt og sifjuð í gærkveldi að við tókum ekki sénsinn á að ná að halda okkur vakandi alla leið. Á laugardaginn var mikið stuð, hrossin voru tekin inn og ég afhenti gæðingana mína tvo sem ég var að selja og tók svo inn hana Vitund okkar og er stefnan sett á að temja hana við fyrsta tækifæri. Það var nú í raun lítið annað sem við gerðum alla helgina. Ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra þar sem það vanst ekki tími til að læra neitt annað en í áfanganum hrossasmölun 303. Því er kominn tími til að ég fari að skoða aðeins félagsfræðina mína. Hafið það bara gott ;)

Það koma svo inn myndir af stuðinu seinna.


16-Nov-2005 16:58 Hugrún Harpa

Það eru níu dagar eftir af skólanum! Þetta er búið að vera alveg rosalega fljótt að líða. Ég var að leggja lokahönd á síðustu stjórnmálafræðiritgerðina mína og þá er bara eftir ein ritgerð sem við Jónína gerum saman. Hún á að vísu að vera 12 bls svo þið vitið hvað ég verð að gera í næstu viku. En það er nú ekki mikið búið að gerast hjá okkur undanfarið. Trausti fór austur í Svínafell um helgina og við Sesar vorum því ein í kotinu. Ég, Solla og Dóra skelltum okkur á ball á Broadway sem var alveg ljómandi gaman, enda voru á móti sól að spila:) Það er alltaf gaman á balli með þeim.Trausti fékk gubbupestina á mánudaginn og fór aftur í vinnuna í dag. Við stefnum svo á að fara heim í Hornafjörðinn eftir vinnu á föstudaginn. Hlökkum mikið til að sjá alla og skoða hrossin okkar.


11-Nov-2005 21:41 Hugrún Harpa.

Við erum eitt

Við erum eitt

án þín er ég ekki neitt

í kulda og byl

sem í sólskin og yl

því enginn fær breytt

við erum eitt.


09-Nov-2005 8:33 Hugrún Harpa

Lítil kona með stórt barn í litlum galla?

gömul kona sem gat engan veginn skilið hvernig hún ætti að komast aftur á Kjalarnes, örugglega aldrei farið þaðan áður. Tveir skuggalegir karlar sem voru í meira lagi krimmalegir og bílstjóri sem er að minnsta kosti blindu á hægra ef ekki bara báðum. Já svona var strætóferðin mín í skólann í gær. Og einhverra hluta vegna leið mér ekkert rosalega vel á leiðinni í Mosó! Fannst einhvern veginn eins og ég væri komin inn í einhverja bíómynd um smáþorp sem er sífelt í baráttu við náttúruöflin og bæjarbúar taka mikla áhættu þegar þeir þurfa að fara til næsta bæjar og sækja sér björg í bú. Það þarf nefnilega að fara um veg sem þekktur er fyrir feikivinda sína og litli langferðabíllinn er ætíð mjög óstöðugur á veginum. Í gærkvöldi örkuðu bæjarbúar svo um göturnar og lá leið þeirra á svo kallaðan hverfafund. Á þann fund var væntanleg hátt sett kona, loksins var hún komin og nú ætluðu bæjarbúar sko að láta í sér heyra. Ég og maður minn sem vorum í saklausum göngutúr með hundinn vorum í sífellu spurð hvort við værum á leið á fund. Vorum spurð hvort það væri virkilega ekkert sem okkur lægi á hjarta og hvort við værum ekki óánægð með eitthvað. Svar mitt var jú! En nennti samt ekkert að fara að rífast eitthvað í kerlingunni yfir því. Geri bara allt hvað ég get til að komast héðan því ég nenni ekki að leika hlutverk í þessari sorglegu mynd.


07-Nov-2005 14:31 Hugrún Harpa

Jæja gott fólk. Þá er þessi mánudagur að verða búinn. Eða að minnsta kosti hjá mér. Búin í skólanum og er komin á nesið og er að fara að skrifa einhvern ritdóm. Helgin var ósköp ljúf svo sem. Trausti var að vinna á föstudagskvöldið og ég fór út að borða með Sollu, Höllu K, Línu og Siggu. Það var alveg rosalega gaman og töluðum við um flest annað en félagsfræði;) Á laugardeginum var Trausti svo að vinna líka og svo fórum við í afmæli til Róberts. Fengum fullt af góðum kökum þar. Á sunnudeginum fórum við svo út að hjóla og svo tókum við hesthúsarúnt og enduðum í mat hjá tengdó.Fengum þar geggjað gott svínakjöt. En eftir allt þetta át um helgina var ekkert gaman að stíga á vigtina í morgun;) Trausti er svo sennilega að vinna frameftir í kvöld eins og öll kvöld í síðustu viku:( Við Sesar erum bara ein heima alltaf.En nú hef ég ekkert meira að segja. Jú er mikið farin að hugsa það hvað ég á að gera næsta sumar. Svo ef þið eruð með einhverjar sniðugar hugmyndir þá endilega látið ljós ykkar skína. Krónan og elliheimili koma ekki til greina!


03-Nov-2005 13:00 Hugrún Harpa

Alveg er það skelfilegt að vera að reyna að lesa félagsfræði og geta ekki hugsað um neitt annað en að komast á bak. Það er frábært veður hérna. Svona eins og var svo oft heima þegar við Frikki vorum að ríða út. Smá snjór, sól og alveg logn.En hér eru engir hestar og enginn Frikki heldur. Eða jú það er fullt af hestum og alltaf verið að bjóða mér að koma á bak en ég er bara að reyna að berja í mig kjark til að taka boðinu. Er bara aðeins of feimin:) En já já ég verð bara að beita mig hörku og halda áfram að lesa um Hnattvæðingu og þekkingarþjóðfélag. Þetta er Fallega bókin eftir Stebba kennara ;) Það er hins vegar alveg óráðið hvernig fer með helgina. Það getur verið að Trausti þurfi að vinna hérna í bænum um helgina en ef ekki og ef það verður hvorki rigning né frost í Svínafelli (mjög hæpið!)fer hann að vinna þar.En ég veit ekki með mig. það er ansi mikið sem þarf að lesa, fer allt eftir því í hvernig stuði ég verð hvað ég geri.


02-Nov-2005 14:41 Hugrún Harpa

Ef þú fengist út í búð myndi ég safna fyrir þér!

Kennarinn minn er snillingur. Hann skrifar bækur og kennir þær svo sjálfur og lætur mann kaupa þær dýrum dómi. Ég meina þetta er nátturlega bara snilld:) Hann Stebbi er svo snjall. Og hann gefst aldrei upp á því að segja okkur hvað kennslubókin er vel skrifuð;) Hann er frábær:) Nokkuð sem ég get ekki sagt um aðra kennara sem ég hef haft! Þeir hafa þó nokkrir verið alveg hreint fínir en ég ætla ekki að fara að telja þá upp. En í gær bjargaði Jóhanna mér alveg þegar við skruppum á rúntinn og töluðum um allt annað en skóla:) Var alveg frábært að gleyma aðeins skólabókunum. En nú verð ég samt að fara að læra og svo verð ég að læra allan morgundaginn. Ég er nefnilega ekkert í skóla á fimmtudögum það sem eftir er annar.


01-Nov-2005 18:16 Hugrún Harpa.

Og enn er ég í Odda! Og hér hef ég verið síðustu daga að skrifa ritgerðir. Nú er ég hins vegar að reyna að lesa allt það sem trassaðist í ritgerðarskrifunum. Ekki veit ég hvað það er sem heldur mér gangandi þessa dagana. Þetta er svona einn af þessum dögum sko! Þar sem ég er eins og sprungin blaðra og leiðist mjög mikið að hugsa um skólann. En veit ekki alveg hvað það er langt síðan ég talaði við einhvern sem var ekki að tala um skólann, ritgerðir eða verkefni. Velti því stundum fyrir mér hvað fólk talaði um við mig áður en ég fór í skólann því það er ekki að gera það lengur! Það er ekki eins og ég geri ekki neitt annað en vera í skóla!!!!??? Eða jú það er kannski svo! JESÚS ég á mér ekkert líf. Svo er það nú ekki til að bæta pirringinn að maður getur aldrei verið viss um að komast á þetta helvítis nes sem er þarna út í rassgati og ég bý á! Ef það mætti einhver staður hverfa af Íslandskortinu þá er það Kjalarnes! Bara púff...hverfa! Það er margt annað sem hvílir þungt á mér en ég ætla að hætta þessu nöldri í bili og fara að lesa! Sorrý þessa leiðinlegu færslu.


24-Oct-2005 8:26 Hugrún Harpa.

Sit hér í Odda og er að fara að læra, það er svo einstaklega rólegt hér svo ég ákvað að byrja ekki strax :) En helgin sem að baki er fór að mestu leiti í að skrifa ritgerð í stjórnmálafræði. Ég er alveg að verða búin með hana og þá á ég bara eina ritgerð eftir fyrir það fag. Mikil hamingja það. Vona svo bara að ég nái þessu krossaprófi sem er sífellt verið að hræða mann á.

En hann Trausti var heima um helgina. Flest ykkar vita nú hvernig það var allt saman svo ég er ekkert að rifja það upp hér...við elduðum kjúkkling og á laugardagskvöldið og buðum fólkinu á Eggertsgötu í mat. Eftir matinn gerðum við svo heiðarlega tilraun til að komast í gegnum Lord of the rings spilið en hringaberinn drapst í þriðja borði ;) Og þá var spilið búið fyrir okkur og Sauron hrósaði sigri enn einu sinni. En það kemur að því að við vinnum hann. Við fórum svo á sunnudaginn niður að tjörn að taka myndir og fórum svo í göngutúr hjá Reynisvatni. Það var mjög gaman og kemur manni sífellt á óvart hvar Reykvíkingar velja sér byggingarland. Við tókum eitthvað af sætum myndum og kemur sennilega eitthvað af þeim hérna inn fljótlega. En nú er aðeins að lifna yfir Odda svo ég ætla að fara að læra.


20-oct-05 20:52 Trausti

Sælt veri fólkið!

Við ákváðum að taka liðinn Myndin? út vegna lélegrar þátttöku. Við ætlum að reyna að setja eitthvað annað í staðinn en það er bara ekki alveg komið í ljós. Við erum að vinna í því að bæta og breyta þessu hjá okkur, svo endilega verið þolinmóð. :)

 


18-Oct-2005 20:50 Hugrún Harpa og Trausti.

Eitt komment hérna...við settum inn myndaalbúm í gær og það er búið að skoða það 24 sinnum en ekki nokkur kjaftur hefur skrifað í gestabók eða kommentað...hvað er í gangi fólk ? Skilja eftir sig spor ;)


18-Oct-2005 16:38 Hugrún Harpa

Já gott fólk það eru komnar fleiri myndir, þetta er svona í bland ferðin austur og Heiðmörk. En það er nú helst í fréttum að hann Trausti minn er alltaf jafn óheppinn og hann datt í vinnunni í dag og skar bita af puttanum á sér á einhverjum lista sem hann rak hendina í þegar hann datt. Það þurfti að sauma hann en meira hefði það nú getað orðið. Þannig að hann slapp í raun bara vel. Sem betur fer. En aldrei venst það að heyra hann segja í símann " ég var að slasa mig " Mér bregður alltaf jafn mikið. Annars er ekki mikið að frétta. Það er bara alveg brjálað að gera í skólanum, mikið af ritgerðum og verkefnum. En nú ætla ég að halda áfram að glósa ;)

bæbæ í bili.


17-Oct-2005 21:45 Trausti

Það eru komnar inn nýjar myndir!!!


14-Oct-2005 18:34 Hugrún Harpa

Já gott fólk það er svona gríðarleg þátttaka í könnuninni. En fyrst hún er bara lala þá verðum við að laga hana eitthvað, eða hann Trausti. Það lendi víst á honum. Hann var að vísu vegna anna ekki alveg búinn með hana en vonandi nær hann að bæta við hana á næstu dögum. En við erum bara heima núna og Trausti fer ekki austur um helgina :) Gaman gaman. Við erum að sjóða slátur en það verður víst ekki borðað fyrr en um níu þar sem við komum aðeins seinna heim en reiknað var með. En það er nú ekki amalegt að kvöldsnarlið sé slátur. Við erum búin að kaupa eina jólagjöf, en það gerðist í dag. En þó við séum svona snemma í þessu þá erum við nú ekkert mikið farin að huga að jólunum, jú við veltum mikið fyrir okkur hvar við eigum að koma jólatrénu fyrir hérna í hreiðrinu. Ég er ekkert að klára dúkinn undir tréð þar sem hann myndi bara þekja gólfplássið þar sem hann er svo stór. En þau í IKEA eru greinilega farin að huga að jólunum! Já það er komið upp skiltið sem kemur alltaf " Jólin þín byrja í IKEA" ÉG meina það er ekki allt í lagi. Það er OKTÓBER....á ekki bara að fara að skreyta ljósastaurana!!! En mér fannst nú ansi fyndið í gær þegar ég varð að fara í VR 2 til að hitta Steina því hann þurfti að hjálpa mér eins og svo oft áður. Þegar ég kom þangað inn var ég alveg út úr kú því það voru allir svo fínir eitthvað í tauinu, svo fór ég niður í Odda að læra en það er aðalsetur félagsvísindadeildarinna og þá var bara allt öðruvísi þar. Þar er fólk bara í ullapeysu og gallabuxum :) Dálítið skondið að sjá muninn á fólkinu sem er þarna :) Tek samt fram að Steini er ekki svona fínn með sig eins og hinir, hann getur alveg verið bara í sínum venjulegu fínu fötum og er samt bara svo skrambi sætur :) En ég hef ekkert meira að segja í bili. Ef einhvern langar til að vita það þá er kjúklingur í matinn á morgun og svo ætla ég að vera svo dugleg að baka snúða á sunnudaginn. Verð að finna einhverja uppskrift í bókunum frá ömmu því ég ætla ekki að gera svona gersnúða :) Bara ef ykkur langaði að vita ;)

Heyumst.


 

10-Oct-2005 10:00 Hugrún Harpa.

Hæ hæ enn og aftur.

Nú er enn ein helgin að baki og þessi var ósköp ljúf. Ég fór austur með Trausta á föstudaginn. Hann varð eftir í Svínafelli en ég fór alla leið heim á laugardagsmorguninn, þar sem ég var orðin svo sifjuð þegar við komum í Svínafell. Eins og alltaf var ákaflega gaman að koma heim. Ég skellti mér í fjós á laugardagskvöldinu og svo fórum við mamma saman á tónleika með Álftagerðisbræðrum á Höfn. Það var alveg frábært að hlusta á þessa snillinga. Ég fór svo í Svínafell eftir hádegi á sunnudeginum og við Trausti vorum farin þaðan klukkan sex. Ég tók helling af myndum eins og alltaf og er stefnan að setja þær inn á næstu dögum. Ég mætti svo í almenna félagsfræði í morgun. Á dagskrá þar voru kenningar Karl Marx á dagskrá. Það er eins og oft áður rok hér á Kjalarnesinu en það voru 30 metrar í kviðum þegar ég kom heim. En nú verð ég víst að fara að lesa í Social problems :) Hafið það gott.


05-Oct-2005 21:26 Trausti

Myndin? hefur verið uppfærð!!

Það er komin ný mynd inn í Myndina. Endilega takið þátt og látið ljós ykkar skína.


04-Oct-2005 11:34 Hugrún Harpa.

Raunasaga sveitastelpunnar í borginni.

Já gott fólk. Ekki er ég nú mikið fyrir það að taka áhættur, það er nú helst vegna þess að þegar ég hef slisast til þess þá hef ég ætíð fengið það mjög fast í smettið aftur. Fólk hefur þó verið að hamra á því við mig að það sé allt í lagi að taka áhættur, það geri bara lífið skemmtilegra. Þetta hugsaði ég í morgun þegar ég ákvað að fara á Borgarbókasafnið og finna mér föndurblöð, ég var búin að finna stæði þar fyrir utan en átti nátturlega að borga í stöðumæli, öskubakkinn var tómur og allir vasar líka svo ég tók áhættuna, ég var alveg sannfærð um að ég myndi sleppa! Ég hleyp því inn, gríp þrjú föndurblöð og hleyp út aftur! Haldið að fíflið standi þá ekki þarna!!!! og miði kominn á rúðuna mína:( Já já ég átti að borga 1500 kr!!!!! Þetta var í ljósi þess að ég held ætíð mjög fast í budduna einstaklega sárt og svekkjandi fyrir hana mig. Ég hringdi í Trausta í angist minni til að spyrja hvar næsti banki væri. Ég fór og borgaði sektina og er ég viss um að ekki nokkur maður hefur borgað stöðumælasekt svo snemma sem ég gerði í dag. En þetta segir mér bara eitt. Ég á ekki að taka áhættur! Þær eru ekki af hinu góða! Jamm nú tek ég sjálfa mig í gegn og geri aldrei neitt slíkt aftur! En mér var nú hugsað til auglýsingarinnar um að sína námsmönnum skilning:) Ég meina mig langaði bara að fá nokkur föndurblöð til að skoða á milli þess sem ég er að lesa námsbækurnar! Er ég að biðja um of mikið? En þessi blöð kostuðu á endanum sitt:)