Þú ert gestur númer

Hugrún & Trausti


20-Feb-2008 8:27

Halló!

SIGUR

 

Langt er liðið síðan síðast og eitt og annað að frétta af okkur. Töluðum ekkert um það síðast að Sigursteinn Ingvar er orðinn stóri frændi. Það er búið að skíra litla frænda og fékk hann nafnið Friðrik Snær. Látum fylgja eina mynd af honum fyrir þau ykkar sem hafið ekki séð hann. Okkur fannst hann fyrst alveg eins og Guðmundur Reynir en það hefur breyst aðeins.

FSFS

Sigursteinn var alveg svakalega duglegur í skírninni og las bara bókina sína.

i skyrn

Við löbbuðum upp að Svartafossi í janúar. Það var mikill snjór og vægast sagt þungfært en það var gaman. Við komumst ekki alveg alla leið þannig að myndatakan var ekki merkileg en ég reyndi samt að taka einhverjar myndir af þessum svaka grýlukertum sem voru í fossinum og þetta er ein þeirra. Svakalega flott en var frekar svekkjandi að komast ekki alla leið til að geta tekið einhverjar flottar myndir. En bara næst.

grilukerti

En það var fallegt veður á leiðinni í Öræfin og þetta var ákaflega skemmtilegur dagur.

flott

Annars er það að frétta af okkur að Trausti er farinn að vinna í Skinney við viðhald á húsunum og ég er farin að vinna hálfan daginn í Þekkingarneti Austurlands. Trausti vinnur því bara hálfan daginn á móti mér og er með Sigurstein þegar ég er ekki heima. Þannig að það er ansi mikið að gera í skóla, vinnu og mömmuhlutverki. Ég verð nú samt bara að vinna út maí og svo held ég áfram að læra og leika við Sigurstein :) En nú verð ég að fara að læra. Þið fyrirgefið villur, nenni ekki að lesa þetta yfir.

 


 

21-Jan-2008 9:01

Góðann daginn gott fólk. Fyrir framan ykkur hafið þið mynd af flottasta strák sem uppi hefur verið :) Hann heitir Sigursteinn Ingvar og dafnar að við höldum bara vel. Hann er samt búinn að vera eitthvað argur síðustu daga og ekki viljað borða mikið. En það lagast nú vonandi.

SIT

Það hefur verið ákaflega fallegt veður hjá okkur en það er kalt. Við höfum því verið dugleg að gefa fuglunum. Það gekk vægast sagt illa í fyrra þar sem þeir föttuðu ekki hvað við vorum að færa á "borð" fyrir þá. En nú hafa þeir gert sér grein fyrir því hversu mikil ljúfmenni við erum og eru nú í stórum hópum að næra sig í garðinum. Þar sem sumir eru með myndadellu þá hefur nátturlega mikill tími farið í það að reyna að mynda vesalings fuglana. Mikill tími hefur farið í það að troða linsunni út um hjónaherbergisgluggann og svo er beðið eftir að dýrin komi í "skotfæri". Það hefur stundum tekið tíma sinn. Eins og sést á myndinni þá kom eitt fórnarlambið auga á ódæðismanninn og hefur honum greinilega þótt hann eitthvað heimskulegur þarna í glugganum :)

FUGL

Skýin hafa líka verið að gleðja okkur. Myndin hér að neðan er einmitt tekin út um hjónaherbergishurðina :) Myndin er nú ekki sérlega góð en gefur kannski einhverja hugmynd um það hvað þetta var flott.

jan2

Við höfum annars haft það gott að undanförnu. Kannski bara of gott því nú verður erfitt að rífa sig af stað og fara að læra. En það verður kannski bara pínu gaman líka. Ég ( Hugrún ) fór á málþing um íþrótta og æskulýðsmál í gær. Vegna óviðráðanlegra ástæðna þá komst ég ekki alveg á réttum tíma, en það var allt í lagi. Ég fór út með nóg til að hugsa um þó ég hafi bara stoppað í max hálfa klukkustund. En á Hornafjörður.is má lesa að á þessu þyngi voru foreldrar hvattir til að stytta börnin sín. Já það var víst talað um það hversu mikilvægt það væri að foreldrar styttu börnin sín. Ég missti af þeim hluta :) En þetta er nú bara pínu prentvilla sem kemur svona skemmtilega út. En við höfum ekki meira að segja í bili. Kannski meira seinna.

 


11-Jan-2008 11:54

Ákváðum að skella hér inn nokkrum myndum frá því sem hefur verið að gerast á heimilinu. Vitanlega eru þær nær allar af Sigursteini Ingvari.

jolahus

Við keyptum svakalega sætt jóladagatal sem var svo gaman að skoða.

sit

Maður er farinn að borða eins og hestur. Er samt enn á brjósti líka. Í matinn er helst hafragrautur og ávextir :) Svona ennþá.

Það snjóaði fyrstu jólin hans Sigursteins Ingvars og var alveg æðislega fallegt veður.

topp

Sigursteinn hjálpaði mömmu að setja toppinn á.

grall

Gaman að grallarast með pabba.

sitja

Sigursteinn er búinn að vera að æfa sig að sitja einn og er alveg svakalega duglegur orðinn. Á þessari mynd er hann orðinn ansi þreyttur enda klukkan orðin hálf níu og hann kominn í náttfötin og tilbúinn í háttinn.

horn

Fengum okkur bíltúr útá Horn núna í vikunni.

Af okkur er ekki mikið að frétta. Skólinn byrjar núna eftir helgina og þá verður nóg að gera að læra og sjá um lítinn dreng. Hafið það bara gott og óskir um gleðilegt ár frá litlu fjölskyldunni á Hólabrautinni.

 


18-Dec-2007 9:49

Góðann daginn gott fólk.
Ansi langt síðan síðast og maður myndi því ætla að það væri eitthvað að frétta og eitthvað til að skrifa um en svo virðist ekki vera. Við hugsum til baka hvað við höfum gert og auðvitað snýr allt það sem við munum að Sigursteini. Hann fór í fimm mánaða skoðun í byrjun des, drengurinn er hinn hraustasti en hefði mátt þyngjast betur. Eftir skoðunina þyrmdi yfir foreldrana og sóttu sterkt á okkur þær hugsanir að við værum alveg vonlaus í foreldrahlutverkinu. Barnið að svelta fyrir framan nefið á okkur!Hann er því byrjaður að fá meira af graut og búinn að prufa stappaðan banana. Honum líkar stappaður banani vel, kannski það sé arfgengt þar sem mamma hans gat ekki borðað banana nema stappa hann. Þannig var það þegar við kynntumst. Það var annað hvort að stappa hann eða skafa utan af honum ysta lagið og éta hann svo. Þetta þótti sumum afar furðulegt og hvað þá sú staðreynd að kúgast á skyri og vilja ekki flatköku með ÞYKKU lagi af kæfu. En móðirin hefur þroskast síðan þetta var og getur nú borðað banana eins og hann kemur úr híðinu og er svona því sem næst hætt að kúgast á skyrinu. Þetta með flatkökur og kæfu hlýtur svo að koma með aldrinum:) Langaði ykkur ekki að vita þetta? Ef ekki þá er það bara ykkar vandamál. En aftur yfir í eitthvað fréttnæmt. Sigursteinn er kominn með eina tönn og það er önnur á leiðinni. Hann hefur enn ekki beitt tönnunum á mömmu sína þegar hann er að drekka. Sem betur fer. Tanntökunni hefur fylgt mikill grátur dag og nótt. Næturnar voru orðnar svo fínar en ástandið á heimilinu hefur verið með skrautlegasta móti síðustu daga. Það eru ekki bara tennurnar sem eru að hrella hann heldur virðist hann hafa verið með einhverja magaverki líka. Hann hefur gubbað mikið og er ekki mjög viljugur að drekka. Það er samt ótrúlegt hvað hann er snöggur að bræða foreldrana. Klukkan hálf fimm í nótt var hann að vakna í fjórða sinn frá því að hann fór að sofa klukkan hálf níu í gærkvöldi. Það var komið að pabba að standa upp og rétta honum snuðið. Heyrðist þá tuð í pabbanum sem var eitthvað á þessa leið " það þýðir ekkert að brosa framan í pabba sinn núna !" ( vel mygluð rödd ) Stuttu eftir er þessi myglaða rödd horfin og heyrist þá með blíðri röddu HÆÆÆÆ sætarófan mín ! Jamm það var eitt lítið bros og það var nóg. Svona rosalega auðveld erum við og hann veit það.
Við erum búin að kaupa jólagjöfina handa báðum strákunum okkar :) Við gáfum Sigursteini rólu sem er rafknúin og er með sex mismunandi hraðastillingum. Hann er strax farinn að nota hana en það er nú ekki farið hraðar en í annan gír. Sesar fékk svo nýtt bæli sem hann er mjög ánægður með. Það er samt ennþá gott að leggja sig í leðursófanum. Stefnan var að fjölskyldan færi suður í stutta skotferð fyrir jólin en fjölskyldufaðirinn fer einn. Varð pínu panik hjá sumum þar sem ekki var búið að redda jólagjöfinni. En það hlýtur að hafast. Jæja allt þetta gátum við skrifað og nú væri gaman að vera verðlaunuð með nokkrum kommentum.

 


26-Nov-2007 18:22

Sælt veri fólkið!

Nú höfum við hjónakornin sett í prentun dagatal sem við ætlum að selja. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa geta sett sig í samband við okkur, hvort sem er símleiðis eða með tölvupósti. Dagatalið kostar kr. 2000,- Myndirnar sem eru á dagatalinu eru allar teknar í Austur- Skaftafellssýslu og ljósmyndarinn er Hugrún Harpa.

Annars er bara allt gott af okkur að frétta. Hugrún svolítið stressuð yfir þessu dagatali en ekkert rosalega mikið. Um næstu helgi verður haldinn jólamarkaður í Nýheimum og Miðbæ og verðum við þar að selja okkar vöru. Í gær buðum við Reyni og Katrínu í mat og Trausti skellti kjöti á gasgrillið, það var svolítið sérstak að borða grillkjöt í nóvember en samt mjög gott og gaman.
Ekkert fleira áhugavert hefur drifið á okkar daga þannig að við kveðjum bara í bili.

Skilaboð frá Sigursteini: Mamma segir að ég sé sætastur.


22-Nov-2007 6:52

Gestir síðustu helgar voru okkar kæru vinir Sigrún Inga & Sigursteinn Haukur. Sigursteinn Ingvar var voðalega duglegur að leika við guðforeldra sína, lét þau hafa aðeins fyrir sér. Trausti er búinn að vera heima þessa vikuna að sinna fjölskyldunni og hefur mikið verið tekið af myndum fyrir smá verkefni sem við erum að vinna að. Hugrún er búin að læra heilann helling af nýjum stillingum á myndavélinni sinni og hefur aldrei verið jafn dugleg að ýta á takkann. Misjafnt hvað kemur að viti út úr þessum miklu tilraunum. Á milli myndataka saumar Hugrún jóladúk svo hann verði nú kannski tilbúinn fyrir þessi jól, nú ef ekki þá bara næstu. Svo þarf hún nú líka að vera að vinna að einhverju verkefni í skólanum, þannig að það er nóg að gera. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma honum Sigursteini Ingvari sem vill nú láta hafa pínu fyrir sér, samt ekki mikið, bara smá.
Dagskráin er nú öllu rólegri hjá Trausta, klára þakkantinn og hjálpa tengdó aðeins og svo bara dingla sér með fjölskyldunni og njóta þess að vera í fæðingarorlofi.
Síðast þegar við vissum þá er enginn hætta á að fá vírus af því að kommenta en það gleður okkur rosalega mikið að lesa skemmtileg komment.
Þangað til næst þá biðjum við ykkur vel að lifa og hafið það sem allra allra best.

 


12-Nov-2007 9:46

Héðan er allt ágætt að frétta. Síðustu tvær nætur hefur Sigursteinn ekki fengið þrjúgjöfina sína og hreint ekki verið ánægður með þjónustustigið á heimilinu. Hann hefur samt verið ótrúlega duglegur. Hann drekkur mikið þegar hann loks fær svo brjóstið, það er jú vissara því maður veit aldrei hvenær þessir foreldrar taka næst uppá því að svelta mann. Drakk kannski heldur mikið í gærmorgun þar sem hann átti bágt með að halda öllu saman niðri. Húsbóndinn kom heim úr Svínafelli á föstudaginn og átti fjölskyldan saman alveg ágætis helgi. Ekki munum við samt hvað við gerðum. Við bara reyndum að njóta þess að vera saman og hafa gaman. Hérna hefur snjórinn ráðið ríkjum síðustu daga en eftir miklar rigningar næturinnar þá er hann bara allur farinn. Í gær renndu krakkarnir í bænum sér aftur og aftur niður Essohólinn....er það kannski enn einn hóllinn ? Nei það passa ekki. En í dag fara þotur og sleðar líklega bara aftur í geymsluna eða skúrinn þar til næst.
Þrátt fyrir rigningu þá er rauða þruman enn í Svínafelli á fínu sumardekkjunum sínum og verður líklega eitthvað lengur. En ætli þetta sé ekki bara nóg í bili.

 


02-Nov-2007 9:36

Já kraftaverkin gerast enn :) Nú skrifum við!!Ekki er nú mikið eftir af þessari síðu en hvað um það. Þar sem gestabókin er ekki virk þá verðið þið bara að kommenta í staðinn, svona ef þið nennið því bara. Það er afar lítið að frétta. Trausti er búinn að vera í Öræfunum þessa vikuna, hann kom samt heim til okkar á miðvikudagskvöldið þar sem við vorum að halda smá pottakynningu. Mamma, Jóna og Raggi mættu í mat sem Halldóra mallaði í þessum fínu pottum. Kynningin varð eiginlega meira að svona skemmtilegu kvöldspjalli sem er bara frábært finnst mér. Við erum búin að vinna okkur inn fyrir gestgjafagjöfinni sem er ekki slæmt :) Trausti fór svo aftur á fimmtudagsmorguninn og kemur svo loks heim í kvöld eða nótt. Ég er bara búin að vera að sauma og svæfa þessa vikuna. Fór líka til mömmu og pabba aðeins og fór með Snæsu í gær að taka myndir af hestum. Hef ekki farið út með myndavélina í LANGAN tíma og var búin að gleyma hvað þetta er gaman. Í dag liggur fyrir að fara út, rölta sér í búðina að kaupa mjólk, fara í apótekið og kaupa lyfin hans Sigursteins og svo bara að sauma og svæfa held ég. Eins og þið sjáið þá eru ekki stórir hlutir að gerast. En nú er Sigursteinn vaknaður svo það er rétt að fara að koma sér af stað í búðina.

 


Eldri fréttir.