Uppskriftir.
Pönnusteikt ýsa með karríkrydduðu grænmeti.
Karríkryddað
grænmeti: |
|
| 750 gr. ýsuflök | 1 stk. laukur |
| 1 msk. karrí | 1 - 2 stk. gulrætur |
| 4.msk hveiti | 1 stk. paprika |
| Salt og Knorr fiskikrydd | 2 tsk. karrí |
| 1 msk. olía | 1 tsk. paprikuduft |
| Hvítur sósujafnari | |
| salt og pipar | |
| Mjólk og vatn (eftir magni sósunar) |
| Roðflettið og snyrtið ýsuflökin og skerið í jafna bita. Blandið saman hveiti, karríi, salti og fiskikryddinu. Veltið ýsubitunum upp úr kryddaða hveitinu og steikið upp úr olíu á pönnu, við miðlungshita. | Afhýðið og saxið laukinn. Skerið gulræturnar í teninga. Fræhreinsið paprikuna og skerið í teninga. Létt steikið þetta upp úr smá olíu við miðlungshita og stráið karríi og paprikudufti yfir. Hellið mjólk og vatni yfir og sjóðið við vægan hita í 5 - 7 mín. Þykkið eftir smekk með hvítum sósujafnara. Smakkið þetta til og kryddið með salt og pipar ef þurfa þykir. |